Handknattleiksdeild

Elín og Heiða í Gróttu

4.2.2012 Handknattleiksdeild : Grótta - Haukar á laugardag

Á laugardaginn munu Haukastúlkur koma í heimsókn á Nesið og mæta heimasætum. Leikurinn hefst kl. 14:00. Sem stendur er Gróttuliðið í 7.sæti deildarinnar og Haukarnir í 6.sæti deildarinnar. Það er því klárlega um mikilvægan leik að ræða fyrir Gróttu en liðið stefnir að því að lenda í 6 efstu sætum deildarinnar en þau gefa þátttökurétt í úrslitakeppninni í vor. Hvetjum alla til að mæta og fylgjast með stelpunum okkar ! Lesa meira
 
Grótta - FH Þráinn

2.2.2012 Handknattleiksdeild : N1-deildin hefst að nýju - Fram í kvöld

Biðin loks á enda. Eftir langt jólafrí og EM-pásu hefst N1-deildin að nýju í kvöld með heillri umferð. Okkar menn í Gróttu mæta Frömurum á Safamýrinni kl. 19:30 og höfum við Gróttumenn allt að vinna. Sem stendur situr liðið á botni deildarinnar en Framarar er í 4.sæti deildarinnar. Gróttuliðið hefur hins vegar æft vel í fríinu og mætir vonandi ferskt núna í fyrsta leik. Fjölmennum á pallana í Framhúsi og styðjum okkar lið. Lesa meira
 
Liðið gegn Víkingum í 3.umferð

2.2.2012 Handknattleiksdeild : Óttar Steingrímsson til liðs við Gróttu

Óttar Steingrímsson er nýr liðsmaður Gróttu en hann kemur frá Fjölni. Óttar er 23 ára gamall, er örhventur og leikur í stöðu hægri skyttu. Óttar var langmarkahæsti leikmaður Fjölnis í fyrra með 102 mörk í 20 leikjum eða rúmlega 5 mörk að meðaltali í leik. Óttar mun án ef styrkja útilínu Gróttuliðsins en hann hefur áður verið í herbúðum liðsins. Það var tímabilið 2008-2009 þegar Gróttuliðið vann 1.deildina og komst í bikarúrslit sælla minninga. Lesa meira
 
3.fl.karla_-_Grotta_-_Valur_3

30.1.2012 Handknattleiksdeild : 3.fl. karla féll úr bikarnum

Strákarnir í 3 flokki karla fóru austur fyrir fjall á miðvikudaginn til að spila við Selfoss í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar. Búist var við spennandi leik þar sem Selfoss var í efsta sæti deildarinnar og Grótta í 4. sæti en það varð því miður ekki raunin. Gróttuliðið mætti ekki til leiks og voru lélegir frá fyrstu mínútu og áður en þeir vissu af lentu þeir strax 3-0 undir. Selfoss liðið spilaði sinn leik sem allir þekkja en Gróttu strákarnir réðu ekkert við þá í þessum leik og Selfoss leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 14-7.

Lesa meira

 
Grotta_-_Stjarnan_leikhle

27.1.2012 Handknattleiksdeild : Grótta - ÍBV á laugardag

Á laugardaginn hefjst seinni umferðin í N1-deild kvenna þegar Grótta mætir ÍBV hérna á Nesinu. Fyrri leikur liðanna í Vestmannaeyjum endaði með eins marks sigri ÍBV í spennandi leik. Eyjastúlkur hafa á að skipa góðu liði sem hefur náð góðum árangri hingað til í deildinni. Leikurinn hefst kl. 13:00 og hvetjum við alla til þess að mæta á leikinn og styðja liðið. Þar sem fyrri umferðinni er lokið er gráupplagt að rýna í smá tölfræði. Lesa meira
 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Á döfinni

23.01.2012 - 08.03.2012 Aðalfundir Gróttu

verða haldnir fimmtudaginn 8.mars nk. Nánar á heimasíðunni þegar nær dregur
 

Útlit síðu:



handbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.