Meistaraflokkur karla

Grótta - FH Þráinn

2.2.2012 Handknattleiksdeild : N1-deildin hefst að nýju - Fram í kvöld

Biðin loks á enda. Eftir langt jólafrí og EM-pásu hefst N1-deildin að nýju í kvöld með heillri umferð. Okkar menn í Gróttu mæta Frömurum á Safamýrinni kl. 19:30 og höfum við Gróttumenn allt að vinna. Sem stendur situr liðið á botni deildarinnar en Framarar er í 4.sæti deildarinnar. Gróttuliðið hefur hins vegar æft vel í fríinu og mætir vonandi ferskt núna í fyrsta leik. Fjölmennum á pallana í Framhúsi og styðjum okkar lið. Lesa meira
 
Liðið gegn Víkingum í 3.umferð

2.2.2012 Handknattleiksdeild : Óttar Steingrímsson til liðs við Gróttu

Óttar Steingrímsson er nýr liðsmaður Gróttu en hann kemur frá Fjölni. Óttar er 23 ára gamall, er örhventur og leikur í stöðu hægri skyttu. Óttar var langmarkahæsti leikmaður Fjölnis í fyrra með 102 mörk í 20 leikjum eða rúmlega 5 mörk að meðaltali í leik. Óttar mun án ef styrkja útilínu Gróttuliðsins en hann hefur áður verið í herbúðum liðsins. Það var tímabilið 2008-2009 þegar Gróttuliðið vann 1.deildina og komst í bikarúrslit sælla minninga. Lesa meira
 
Grótta - FH Þráinn

16.12.2011 Handknattleiksdeild : Herslumuninn vantaði

Grótta mætti FH öðru sinni í þessari viku á fimmtudagskvöld, nú í N1-deildinni. Leikurinn byrjaði illa fyrir okkar menn en fljótlega náðu FH-ingar fjögurra marka forskoti, 1-5. Gróttumenn náðu að minnka muninn næstu mínúturnar en staðan í leikhléi var 12-15, íslandsmeisturunum í vil. Í byrjun síðari hálfleiks náði FH-ingar góðum kafla, líkt og í fyrri hálfleik, og komust mest í 6 marka forskot, 14-20. Lesa meira
 
HK_-_Grotta_Arni

15.12.2011 Handknattleiksdeild : Grótta - FH í N1-deildinni í kvöld

Í kvöld fer fram leikur Gróttu og FH í N1-deildinni í meistaraflokki karla. Leikurinn hefst kl. 19:30. Er þetta önnur rimma þessara liða á stuttum tíma en FH-ingar unnu okkar menn nokkuð sannfærandi síðastliðinn mánudag 18-28. Okkar menn eru staðráðnir að gera betur núna. Fólk er hvatt til þess að mæta og styðja okkar menn. Lesa meira
 
Grótta - FH bikar

14.12.2011 Handknattleiksdeild : Grótta datt út úr bikarnum

Grótta mætti FH í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins í handknattleik á mánudaginn. Það er skemmst frá því að segja að íslandsmeistarar FH tryggðu sér sæti í undanúrslitum eftir nokkuð öruggan sigur á okkar mönnum, 18-28 eftir að staðan hafði verið 15-10 í hálfleik. Grótta lék vel fyrstu 20 mínútur leiksins en eftir það komst FH á lagið. Lesa meira
 
Grótta - FHu

12.12.2011 Handknattleiksdeild : Grótta - FH í kvöld í bikarnum

Í kvöld fer fram seinasti leikurinn í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins þegar FH-ingar mæta út á Nes. Framarar, Haukarmenn og HK-ingar hafa nú þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum. Leikurinn hefst kl. 19:30 og hvetjum við alla sem vettlingin geta valdið til að mæta á styðja strákana okkar sem voru grátlega nálægt sínum fyrsta sigri í N1-deildinni á fimmtudaginn sl.

Lesa meira
 
Afturelding - Grótta

9.12.2011 Handknattleiksdeild : Grátlegt tap gegn Aftureldingu

Á fimmtudagskvöld mætti Gróttu liði Aftureldingar í Mosfellsbæ. Fyrir leikinn var Grótta á botninum með 1 stig en Afturelding í næstneðsta sætinu með 4 stig. Leikurinn hafði þess vegna mikla þýðingu fyrir bæði lið. Afturelding byrjaði leikinn mun betur en okkar menn og komust í 6-2. Grótta náði þó að minnka muninn niður í eitt mark 11-10 þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Afturelding spýtti í lófana og náði þriggja marka forskoti fyrir leikhlé, 16-13. Lesa meira
 
UMFA - Grótta Bikar

8.12.2011 Handknattleiksdeild : Afturelding - Grótta í kvöld

Þá er komið að einum mikilvægasta leik tímabilsins þegar við mætum Aftureldingu öðru sinni í deildinni. Fyrri leikurinn endaði með eins marks sigri Aftureldingar og eigum við Gróttumenn því harm að hefna. Leikurinn hefst kl. 19:30 og fer fram í Mosfellsbæ. Það þarf vart að tíunda hversu mikilvægur leikurinn er fyrir liðið en með sigri verðum við í bullandi baráttu áfram um að halda sæti okkar í deildinni. Lesa meira
 
Haukar - Grótta Toggi

1.12.2011 Handknattleiksdeild : Enn eitt tapið

Á fimmtudagskvöld fór fram leikur Hauka og Gróttu í N1-deildinni í handknattleik. Haukamenn tróna áfram á toppi deildarinnar eftir nokkuð auðveldan sigur á okkar mönnum, 29-17. Fyrstu mínútur leiksins gáfu góð fyrirheit, vörnin til fyrirmyndar og sóknarleikurinn þokkanlegur en síðan ekki söguna meir. Sóknarleikurinn var slakur í framhaldinu og fengu okkar menn þess vegna mörg hraðaupphlaupsmörk í bakið. Hálfleiksstaða var 13-6. Lesa meira
 
Grótta - Haukar Jói

1.12.2011 Handknattleiksdeild : Haukar - Grótta í kvöld kl. 19:30

Í kvöld fer fram næsti leikur karlaliðsins í N1-deildinni. Grótta sækir þá Hauka heim í Schenkerhöllinni að Ásvöllum. Leikurinn hefst kl. 19:30. Við Gróttufólk fengum heldur betur krítík á okkur í seinasta þætti af Íslenska boltanum, sumt réttmætt og annað sem á ekki við rök að styðjast. Sýnum að við styðjum Gróttu jafnt í mótbyr sem meðbyr, mætum í kvöld og látum liðið finna að það sé stutt við þá.
Lesa meira
 
Grottulidin_2010-2011

28.11.2011 Handknattleiksdeild : Ósk um liðsstyrk

Núna eru meistaraflokkar karla og kvenna í handknattleik í eldlínunni í öllum mótum. Undanfarin ár hefur verið mikill stígandi í öllu starfi innan handknattleiksdeildar. Mikill efniviður er innan félagsins og metnaður til þess að nýta það tækifæri til þess að festa báða flokka á meðal þeirra bestu á komandi árum.
Lesa meira
 
UMFA_-_Grotta_fognudur

23.11.2011 Handknattleiksdeild : Grótta - HK á morgun í N1-deildinni

Næstkomandi fimmtudagin fer fram næsti leikur strákanna okkar í N1-deildinni. Eftir brösótt gengi í deildinni framan af móti styttist alltaf í fyrsta sigurleikinn. Þó að hann hafi komið í bikarnum um daginn, þá gildir það ekkert í deildinni. Sameinumst öll á pallana á fimmtudaginn og styðjum okkar unga og efnilega lið í baráttunni í deildinni.

Lesa meira
 
Grotta_-_Valur_vorn

17.11.2011 Handknattleiksdeild : Valur - Grótta í kvöld

Eftir leiki í Eimkipsbikarnum hefst N1-deildin að nýju. Grótta sækir Val heim að Hlíðarenda í Vodafonehöll þeirra Valsara. Bæði þessi lið unnu sína bikarleiki naumlega, Grótta gegn Aftureldingu og Valur fyrstu-deildarlið ÍR. Um er að ræða fyrsta leikinn í 2.umferð íslandsmótsins. Eina stig Gróttu hingað til í deildinni var einmitt gegn Val í fyrstu umferð. Núna verða bæði stigin vonandi tekin. Leikurinn fer fram kl. 19:30. Lesa meira
 
Eimskipsbikarinn

16.11.2011 Handknattleiksdeild : Bæði liðin fengu FH í næstu umferð

Dregið var í 8-liða úrslit Eimskipsbikarsins í hádeginu í dag. Grótta var bæði með karlaliðið og kvennaliðið í pottinum. Meistaraflokkur karla fékk sjálfa íslandsmeistarana í FH í næstu umferð en leikið verður á Nesinu 4. eða 5.desember nk. Meistaraflokkur kvenna fékk einnig FH í næstu umferð en liðin léku við hvort annað um seinustu helgi og gerðu jafntefli. Leikurinn fer fram 24. eða 25.janúar nk. Lesa meira
 
UMFA - Grótta Bikar

15.11.2011 Handknattleiksdeild : Karakterssigur fleytti Gróttu áfram í bikarnum

Grótta mætti í kvöld Aftureldingu í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Búast mátti við jöfnum og skemmtilegum leik að Varmá. Gróttumenn hófu leikinn af kraftu og komust fljótlega í 2-0 og 4-2. Á þeim kafla jöfnuðu Mosfellingar leikinn og höfðu síðan undirtökin í leiknum mestan part leiksins. Mest komst Afturelding í 8 marka forskot í fyrri hálfleik en virkilega slakur sóknarleikur skilaði Aftureldingu fjölmörgum hraðaupphlaupsmörkum.

Lesa meira

 

Útlit síðu:



fimleikamynd1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.