Handknattleiksdeild
Gísli: "Getum unnið alla"
Handbolti - Mfl. karla
Heimasíðan fékk Gísla Guðmundsson, spilandi aðstoðarþjálfara Gróttuliðsins til að svara nokkrum spurningum varðandi leikinn á fimmtudaginn og veturinn í heildina. Gísli lék með Gróttu/KR fyrir nokkrum árum síðan, þannig að hann þekkir vel til Nessins. Gísli hefur spilað mjög vel í upphafi móts og oft og tíðum verið besti leikmaður liðsins.
1. Gróttuliðinu var spáð neðsta sæti í N1 deildinni fyrir tímabilið. Með sigri gegn HK getum við tryggt okkur 4. sætið, a.m.k. fram yfir hlé. Þá er liðið komið í undanúrslit Eimskips-bikarsins. Kemur þessi árangur liðsins þér á óvart?
Nei, í rauninni ekki. Þrátt fyrir að okkur hafi verið spáð neðsta sæti (sem kom mér á óvart) þá höfum við á að skipa nokkuð reyndu liði. Við gerðum okkur alveg grein fyrir því að það yrði stutt á milli þess að halda sér í deildinni og því að berjast um 4-5 sætið. Okkar markmið var að halda sér í deildinni og það verður það áfram. Við eigum erfitt prógram eftir jól og þurfum að halda vel á spilunum og vera áfram einbeittir. Bikarinn er alltaf bikar, þar getur allt gerst. 4-liða úrslitin verða 50-50 leikir þar sem allt verður lagt í sölurnar.
2. Liðið hefur verið á góðri siglingu síðustu vikur eftir fremur brösuga byrjun í deildinni. Hvað skýrir þennan viðsnúning að þínu mati?
Fyrst og fremst tel ég að menn hafi áttað sig á því að við gætum raunverulega unnið alla og svo höfum við bætt okkur töluvert í hraðaupphlaupunum.
3. Nokkuð hefur verið um meiðsli í leikmannahópnum að undanförnu, eru allir klárir í slaginn gegn HK?
Já, ég held að við getum teflt fram okkar sterkasta liði á fimmtudag.
4. Líkt og kunnugt er fór HK með sigur af hólmi síðast þegar liðin áttust við. Hvernig reiknarðu með að leikurinn á morgun spilist og hvað þurfum við að gera til þess að landa sigri?
Við þurfum að eiga toppleik til að vinna sigur á HK. HK-liðið er sterkt, hafa verið að spila mjög góða vörn og agaðan sóknarleik. Við þurfum að sama skapi að spila góða vörn og reyna að refsa þeim með okkar hraðaupphlaupum. Þetta verður jafn og spennandi leikur sem vonandi endar með sigri okkar.
Ég vil að lokum hvetja alla Gróttumenn til að mæta á leikinn og hvetja liðið til dáða eins og þeir hafa verið að gera í síðustu leikjum. Þetta er okkur ómetanlegur stuðningur og aukabúst til að sigra jafna leiki!!
Áfram Grótta!

