Handknattleiksdeild

3.flokkur karla í bikarúrslit í fyrsta skipti

Handbolti - 3.fl. karla

17.2.2010

3.flokkur karla komst í úrslitaleikinn í Eimskips bikarnum í gærkvöld eftir frækinn sigur á sterku liði FH í Kaplakrika. Gróttustrákarnir mættu griðarlega einbeittir til leiks og staðráðnir í komast í úrslitaleikin. Þeir skoruðu fyrsta mark leiksins en leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik og munaði aldrei meira en einu marki, staðan í hálfleik 10-10.

Strákarnir mættu gríðarlega grimmir í síðari hálfleikinn og náðu fljótlega 2-3 marka forskoti sem þeir létu ekki af hendi og unnu sanngjarnan fjögurra marka sigur, 22-26. Vert er að minnast á frammistöðu Arnars Imsland í markinu sem fór hamförum og var með um 25 skot varin. Einnig var Þráinn Orri Jónsson mjög öflugur í seinni hálfleik og setti þá 8 mörk. Þetta var þó sigur liðsheildarinnar þar sem allir unnu fyrir hvern annan og liðið uppskar eftir því í þessum leik. Úrslitaleikurinn er gegn mjög sterku liði Stjörnunnar sunnudaginn 28. febrúar nk. Nánari tímasetning kemur síðar.

Markaskor:

Þráinn Orri Jónsson - 9
Árni Benedikt Árnason - 7
Aron Valur Jóhannsson - 4
Guðmundur Jóhann Guðmundsson - 2
Þorgrímur Þórarinsson - 2
Aron Freyr Lárusson - 1
Hörður Bjarkason - 1

ArnarImsland var maður leiksins með um 25 skot varin.

Á föstudag kl. 20.30 leikur 4.flokkur karla í undanúrslitum í bikarnum gegn Fram. Leikurinn er á Nesinu og hvetjum við alla til þess mæta og styðja þá alla leið í úrslit !



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.