Handknattleiksdeild

Stutt spjall við Þóri Jökul

Handbolti - Mfl. karla

4.3.2010

Þórir Jökull Finnbogason er mættur aftur á klakann eftir nokkra mánaða dvöl í Noregi þar sem hann lék með Molde í 2.deildinni. Við báðum Jökul að svara nokkrum spurningum er dvölina í Noregi, um Gróttuliðið og möguleika þess í leiknum í kvöld gegn Stjörnunni.

Nú ert þú kominn aftur til Íslands eftir að hafa verið á mála hjá Molde í Noregi frá því seinasta sumar. Hvernig var vistin og hvernig gekk ykkur?

Það var mjög gaman að prófa að fara til útlanda og spila handbolta. Mér leið mjög vel þarna úti en liðið var um miðja deild sem var framar vonum stjórnarinnar. Mér persónulega gekk mjög vel, er enn þá í 6.sæti yfir markahæstu menn deildarinnar ;).

Hvernig stóð á því að þú komst heim?

Það var samblanda af nokkrum hlutum, en það sem gerði lokaútslagið var það að ég átti að byrja í vinnu 1. febrúar en svo varð ekkert úr því. Ég var því atvinnulaus í útlöndum og það bara gekk ekki til lengdar.

Þú komst heim í byrjun febrúar, nokkrum dögum eftir lokun félagsskiptagluggans og getur þar með ekki leikið með liðinu á vormánuðum. Engu að síður æfir þú með liðinu. Hvernig finnst þér hollingin á liðinu?

Mér finnst hún bara mjög góð, það er að sjálfsögðu visst vesen með örvhenta leikmenn en það hafa verið dregnir fram ungir og efnilegir leikmenn eins og Davíð Gísla sem munu redda þessu.

Nú er leikur í kvöld gegn Stjörnunni, án efa mikilvægasti leikurinn í vetur. Hvernig spáir þú leiknum?

Það vita að sjálfsögðu allir leikmenn liðsins að þetta er viss úrslitaleikur, ef liðið vinnur þennan leik þá er liðið komið með fimm stiga forskot á Stjörnuna. Liðið á þá ennig innbyrðisviðreign á Stjörnuna og ég persónulega held að það dugi til að vera fyrir framan þá þegar tímabilið klárast. Leikurinn fer 26-23 Gróttu í vil.

Nokkuð hefur verið um meiðsli undanfarið, eru allir klárir í slaginn gegn Stjörnunni?

Það spila held ég allir með sem mögulega geta þegar það er komið í svona mikilvægan leik en Finnur breytti til og braut bátsbeinið sitt og verður því ekki með.

Eitthvað að lokum?

Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að mæta í Mýrina í kvöld kl. 19:30 og styðja Gróttu. Áfram Grótta !



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

HK - Grótta

Knattspyrna - Mfl. karla
Miðvikudaginn 28.ágúst     kl. 20:00
Kópavogsvöllur
 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.