Handknattleiksdeild

Stórleikurinn í dag kl. 16:00 - Viðureignir fyrri ára

Handbolti - Mfl. karla

1.5.2010

Í dag kl. 16:00 hefst leikur Gróttu og Aftureldingar í úrslitum umspils N1-deildarinnar. Eins og áður hefur komið fram má búast við fjölmenni á leiknum og því mikilvægt að strákarnir okkar fái stuðning frá áhorfendum. Viðureignir þessara liða hafa oftar en ekki verið jafnar og skemmtilegar. Hér að neðan má skoða þær athyglisverðustu undanfarin ár.

Tímabilið 2008-2009 - 1.deild karla
Grótta - Afturelding: 29-20. Brynjar Örn Árnason með 7 mörk og Arnar Freyr Theodórsson með 6 mörk
Afturelding - Grótta: 24-25. Finnur Ingi Stefánsson með 8 mörk og Arnar Freyr Theodórsson með 6 mörk
Afturelding - Grótta: 24-21. Finnur Ingi Stefánsson með 8 mörk, Beló og Þorleifur Árni með 3 mörk hvor

Tímabilið 2006-2007 - 1.deild karla
Grótta - Afturelding: 27-34: Brynjar Örn Árnason með 10 mörk og Finnur Ingi Stefánsson með 6 mörk
Afturelding - Grótta: 29-23: Finnur Ingi Stefánsson með 8 mörk og Dimitrj og Davíð Hlö með 3 mörk hvor
Grótta - Afturelding: 20-32: Finnur Ingi Stefánsson með 5 mörk og Dimitrj og Þorleifur Árni með 3 mörk hvor

Tímabilið 2004-2005 - 1.deild karla
Grótta/KR - Afturelding: 27-25: Kristinn Björgúlfs með 10 mörk og Daníel Berg Grétarsson með 5 mörk
Afturelding - Grótta/KR: 23-22: Davíð Ágústsson með 5 mörk og David Kekelia og Kristján Geir með 4 mörk

Tímabilið 2002-2003 - DHL-deild karla
Afturelding - Grótta/KR: 18-26: Páll Þórólfsson með 8 mörk og Alexander Petterson með 7 mörk
Grótta/KR - Afturelding: 28-24: Alexander Petterson með 11 mörk og Sverrir Pálmason með 7 mörk

Síðan spólum við nokkur tímabil aftur í tímann þegar Grótta mætti Aftureldingu í Nissan-deildinni tímabilið 1996-1997. Þá spiluðu menn eins og Jens Gunnarsson línumaður, Sigtryggur Albertsson markmaður, Davíð B. Gíslason skytta, Jón Þórðarson hornamaður, Þórður Ágústsson hornamður, Juri Sadowski miðjumaður, Guðjón Valur Sigurðsson hornamaður, Hafsteinn Guðmundsson (núverandi stjórnarmaður), Ólafur Finnbogason markamaður og fleiri og fleiri með liði Gróttu.  Með liði Aftureldingar léku Bergsveinn Bergveinsson og Sebastian Alexanderson markverðir, Róbert Sighvatsson línumaður, Bjarki Sigurðsson skytta, Gunnar Andrésson leikstjórnandi, Páll Þórólfsson hornamaður, Alexai Trufan og fleiri.

Það er skemmst frá því að segja að Gróttumenn unnu þann leik 25-21 í kaflaskiptum leik. Þessir leikur var sýndur á RÚV og er það mál manna að Ólafur Finnbogason hafi lokað rammanum í 20 mínútur í síðari hálfeik og skóp þar með öruggan sigur Gróttumanna gegn stjörnuprýddu liði Aftureldingar. Grótta hafði í umferðinni á undan gert ævintýralegt jafntefli gegn KA, 28-28 en með liði KA léku Duranona, Patrekur Jóhannesson, Erlingur Kristjánsson og fleiri. Þetta eru leikir sem gleymast seint í minni Gróttumanna. Þjálfari Gróttu á þessum tíma var Gauti Grétarsson.

_______________________________________________

Það er von að Gróttumenn sýni sama dugnað í leiknum í dag gegn Aftureldingu. Leikurinn hefst kl. 16:00 en fólk er beðið um að vera mætt tímalega.

Áfram Grótta !



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.