Handknattleiksdeild

Grótta - Afturelding: 0 - 1

Handbolti - Mfl. karla

2.5.2010

Fyrsti leikur í umspili um sæti í N1 deild að ári fór fram á Seltjarnarnesi á baráttudegi verkalýðsins. Afturelding voru gestir okkar. Afturelding fór með sigur af hólmi og leiðir nú einvígið 1-0 en tvo sigurleiki þarf til að tryggja sæti í N1-deildinni.

Leikmenn Gróttu náðu sér aldrei á strik. Liðið var þó með forskot í byrjun en þegar líða fór á leikinn náðu liðsmenn Aftureldingar að komast yfir. Staðan í hálfleik var 13-12 fyrir gestina. Gróttumenn komu sem lamaðir inn í síðari hálfleik og gestirnir nýttu sér það og náðu fjögurra marka forystu snemma í síðari hálfleik. Þó Grótta hafi komið til baka í einhvern tíma var það Afturelding sem landaði sigri, 25-22.

Grótta átti sennilega sinn allra versta dag og spiluðu allir sem einn undir getu. Það er ljóst að leikmenn liðsins verða að líta í sinn einkabarm. Liðið er nú undir í baráttu um sæti í deildinni að ári og ef ekki á illa að fara verða menn að mæta með allt öðrum hætti til leiks í næsta leik. Í næsta leik er hreinlega allur veturinn og meira til undir.

Markahæstir hjá Gróttu voru Hjalti Þór og Anton Þór með fimm mörk hvor.

Dómarar leiksins voru Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Höfðu þeir góð tök á leiknum. Gaman er að sjá hvað þeir félagar eru í mikilli framför.

Næsti leikur í einvíginu er á mánudagskvöld kl. 1930. Leikurinn fer fram að Varmá. Grótta býður upp á langferðabifreiðaferðir frá íþróttahúsinu. Þær sætaferðir verða dyggilega auglýstar siðar.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.