Handknattleiksdeild
Hjalti Pálma í ítarlegu viðtali
Handbolti - Mfl. karla
Heimasíðan fékk Hjalta Þór Pálmason skyttu Gróttuliðsins til að svara nokkrum laufléttum spurningum nú í morgunsárið. Tilefni þess er auðvitað leikur Aftureldingar og Grótta sem fer fram í kvöld að Varmá í Mosfellsbæ kl. 19:30. Eftir slæmt tap á laugardaginn kemur fátt annað til greina en sigur í kvöld til að knýja fram oddaleik á miðvikudaginn.
* Hvernig metur þú möguleika Gróttu gegn Aftureldingu í þessu einvígi?
Eftir tapið á laugardaginn erum við komnir þétt upp við vegginn. Það kemur ekkert annað til greina en sigur í kvöld og svo aftur á miðvikudaginn.
* Hvernig er mórallinn í liðinu?
Mórallinn er fínn og menn eru fókuseraðir á verkefnið.
* Hvernig undirbýrðu þig fyrir svona stórleik?
Það er engin athöfn, snýst allt um að borða vel og hvílast vel. Svo er bara að koma með hausinn í lagi.
* Ertu haldinn einhverri hjátrú varðandi leiki?
Maður reynir að halda svipuðum rútínum, borða á réttum tíma, hlusta á réttu lögin og svo hitar maður upp alltaf á sama stað hliðin á Tona tvist.
* Hver er besti samherjinn?
Þegar við erum vel innstilltir og vörnin þétt þá er mjög gott að hafa Ægi við hliðin á sér. Annars eru þetta allt snillingar á sínum sviðum, hver svo sem þau eru.
* Nú hefur þú verið með sýkingu í hendinni. Verður þú orðinn klár í kvöld?
Ég er all in í kvöld!
* Hefur mikið breyst síðan Geir Sveins tók við liðinu?
Já það hefur ýmislegt breyst, tempóið á æfingum er öðrvísi og við höfum verið að slípa varnarleikinn eftir hans útfærslum sem eru öðruvísi en hjá Halldóri.
* Hver er öflugastur í Aftureldingu, hverjir eru þeirra styrkleikar?
Þeir eru með marga spræka menn sem sumir eru nálægt því að vera ofvirkir. Þeirra styrkleiki er hungrið og brjálæðið, svo hafði ég mjög gaman af æstum stuðningsmönnum þeirra.
* Hversu mikilvægur er stuðningur áhorfenda í svona leikjum?
Stuðningurinn getur skipt öllu. Okkar stuðningsmenn fengu verðugt verkefni á laugardaginn að halda í við kjúklingabændurna og stóðu sig vel. Ég býst við algjöru brjálaði í næstu leikjum. Þannig á þetta að vera, það er úrslitakeppnisstíll yfir þessu.
* Hver er stressaðasta týpan í Gróttu?
Siggi snillingur Mey má ekki við miklu ef hann ætlar að halda kúlinu.
* Hver er furðufugl Gróttu?
Ég hef voða gaman af Úlla, skil hann varla.
* Hvað mætti betur fara hjá Gróttu?
Það er fátt ef eitthvað sem ég get nefnt við félagið. Frábær klúbbur og virkilega vel staðið að öllu í kringum liðið. Það sem mætti auðvitað fara betur er árangur liðsins í vetur. Við áttu auðvitað að vera búnir að tryggja sætið í deildinni fyrr.
* Hvað heillar þig?
Heilladísirnar...
* Hvar sérðu þig eftir fimm ár?
Ég er ekki svona fjarsýnn
* Körfubolti eða fótbolti?
Úff erfið spurning. Við Ægir erum búnir að taka 3 stiga keppni í körfu fyrir æfingar í allan vetur. Hann er sennilega búinn að vinna í 80% tilfella, en ég tel það gríðarlega góðan árangur hjá mér þar sem hann var jú valinn efnilegasti körfuboltamaðurinn í efstu deild árið 1985 eða 6. Annars er engin almennilega æfing án upphitunar í fótbolta..
* Vandræðalegasta atvik inn á handboltavelli?
Ætla síðasta klúðrið mitt komist ekki ofarlega; þar sem ég kom inná á móti Stjörnunni og fer í sókn og dett í eigin fintu hleyp svo til baka og fæ mína þriðju brottvísun í leiknum og þar með rautt. Tveim vikum seinna kemur svo upp sýking í olnboganum á mér eftir sárið sem ég fékk þegar ég datt... Meiriháttar töff.
* Eitthvað að lokum?
Þetta er búinn að vera hörku vetur, við höfum átt okkar góðu spretti en líka slæmu daga. Það er ekki spurning að þetta lið á heima í efstu deild og það kemur ekki til greina að klúðra því á lokasprettinum. Við ætlum að gefa allt í þetta. Áfram Grótta!

