Handknattleiksdeild
Geir Sveinsson áfram með meistaraflokk
Handbolti - Mfl. karla
Undirritaður hefur verið samningur við Geir Sveinsson um að hann haldi áfram með meistaraflokk karla hjá félaginu. Það er félaginu mikill styrkur að Geir haldi áfram með liðið, enda margreyndur þjálfari og leikmaður.
Hinn nýráðni þjálfari hefur þegar hafið störf en liðið hefur æft allan júní. Verður hlé gert á æfingum mest allan júlí en byrjað á ný í ágúst. Keppni í 1. deild hefst svo í október. Hlutverk Geirs verður að koma liðinu aftur í keppni þeirra bestu.
Geir spilaði 340 landsleiki fyrir Íslands hönd og var fyrirliði liðsins í áraraðir. Þá lék hann sem atvinnumaður í Frakklandi, á Spáni og í Þýskalandi.
___________________________________________
Viðtal við Geir Sveinsson þegar hann var nýtekinn við liði Gróttu má sjá hérna
Mynd tekin af mbl.is

