Handknattleiksdeild
12 stelpur skrifuðu undir samninga í gær
Handbolti - Mfl. kvenna
Í gær var gerður samningur við 12 leikmenn meistaraflokk kvenna. Samningarnir er allir til tveggja ára. 11 af þessum 12 leikmönnum eru uppaldir hjá félaginu og gengið í gegnum öflugt barna- og unglingastarf félagsins. Mikill metnaður er hjá deildinni að byggja á þessum ungu á efnilegu stelpum til framtíðar. Margar þeirra hafa nokkurra ára reynsla í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur. Hjá meistaraflokki er nýr þjálfari, Ómar Örn Jónsson en hann mun hafa það markmið að koma meistaraflokki kvenna í fyrri hæðir með þessum mikla efnivið sem skipar meistaraflokk og 3.flokk kvenna.
Meistaraflokkur kvenna er á ný í N1-deild kvenna eftir eins árs veru í 1.deildinni. Liðið hafði gott af því að spila í 1.deildinni í fyrra en nú er liðið reynslunni ríkari og mun stökkva í djúpu laugina í N1-deildinni.
Við óskum stelpunum til hamingju og eigum við eflaust eftir að sjá mikið til þeirra í vetur þegar deildin hefst í byrjun október.
Þær stelpur sem skrifuðu undir samninga í gær voru:
Auður Ólafsdóttir
Ásrún Lilja Birgisdóttir
Elísabet Þórunn Guðnadóttir
Guðný Halldórsdóttir
Helga Rún Hlöðversdóttir
Helga Þórunn Óttarsdóttir
Hildur Marín Andrésdóttir
Hlíf Ágústa Reynisdóttir
Katrín Viðarsdóttir
Rebekka Guðmundsdóttir
Steinunn Kristín Jóhannsdóttir
Tinna Laxdal

Efri röð frá vinstri: Helga Þórunn Óttarsdóttir, Ásrún Birgisdóttir, Rebekka Guðmunndsdóttir, Elísabet Þórunn Guðnadóttir og Ómar Örn Jónsson þjálfari
Neðri röð frá vinstri: Helga Rún Hlöðversdóttir, Katrín Viðarsdóttir, Hildur Marín Andrésdóttir, Guðný Halldórsdóttir og Tinna Laxdal

