Um handknattleiksdeild
Um handknattleiksdeild
Handknattleiksdeild Gróttu varð til árið 1969 er nokkrir leikmenn úr KR gengu úr félaginu og stofnuðu handknattleiksdeild innan Gróttu. Fyrsti formaður deildarinnar var Stefán Ágústsson. Árið 1974 komst liðið í fyrsta sinn í efstu deild en liðið féll niður í aðra deild 2 árum síðar og þaðan lá leiðin beint niður í 3. deild. Árið 1987 náði liðið að komast upp í 1. deild á ný og stóð sig með prýði. Þegar þarna er komið við sögu er ráðist í byggingu á nýju íþróttahúsi.
Meistaraflokkur kvenna var virkur í ein sex keppnistímabil. Frá árinu 1986 til 1993.
Mjög blómlegt starf hefur verið í gegn um tíðina hjá yngri flokkum Gróttu þrátt fyrir að nokkrir flokkar hafi týnst. Margir titlar hafa unnist bæði hjá stúlkum og drengjum og er yngriflokka starfið í handbolta hjá Gróttu mjög öflugt í dag.
Handknattleiksdeild Gróttu sameinaðist handknattleiksdeild KR árið 1997, sameiginleg handknattleiksdeild þessarra liða kallast Grótta/KR og hefur það samstarf haldist óslitið þangað til vorið 2005 þá slitnaði upp úr samstarfinu og keppir núna Grótta undir eigin merkjum í öllum flokkum.

