8.flokkur karla
8.fl.karla - Uppgjör - október
Handbolti - 8.fl. karla
Nú eru rúmir tveir mánuðir liðnir af handoltavertíðinni. Fyrsta pizzakvöld gekk vel og strákarnir eru farnir að hlusta betur og taka betur eftir á æfingum (æfingin skapar meistarann). Framfarir eru að sjálfsögðu með ágætum en mismiklar. Búið er að fara í gegnum helstu fintur/gegnumbrot með stöðvaþjálfun, sendingar, hraðaupphlaup/1 og 2 saman, helstu handboltareglur, gólfskot/með uppstökki og síðast en ekki síst samspil milli 2 og 3 leikmanna.
Þegar vel gengur hef ég leyft þeim að fara í gryfjuna en einungis hluta úr æfingu, 1-3 í mánuði.
Nóvember verður með svipuðu móti en haldið verður áfram að leggja áherslu á þessa grunnþætti.
Ef það eru einhverjar spurningar endilega hafið samband.
Með kveðju,
Davíð og Lárus

