Knattspyrnudeild
Fyrsti dagur að baki á Shellmótinu í Eyjum
Knattspyrna - 6.flokkur karla
Þá er fyrsta degi lokið hér á Shellmótinu í Eyjum. Alls voru 12 leikir spilaðir hjá strákunum eða þrír á lið. Gengið var misjafnt en þó náði B-liðið að sigra alla sína leiki. Í morgun var frábært fótboltaveður en þá var blankalogn og rigning. Gæti ekki verið betra. Eitthvað vafðist það þó fyrir strákunum að spila í logninu en það var þó grasið sem að kom þeim mest á óvart enda hafa strákarnir vart stigið fæti á gras á þessu ári. Það segir okkur að það er enn gríðarmikil þörf fyrir nothæfan grasvöll á Valhúsahæðinni, ekki bara fyrir krakkana að komast á gras heldur einnig til að anna hinu mikla álagi sem er á gervigrasvellinum. En á morgun halda leikirnir áfram og við vonandi komum með frekari fréttir af strákunum og gengi þeirra. En allar upplýsingar um mótið er að finna á Shellmótsvefnum.

