Knattspyrnudeild
Góður sigur Gróttu á ÍA í 2.flokki karla
Knattspyrna - 2.flokkur karla
Grótta tók á móti Skagamönnum í 2.flokki karla í gær í blíðviðri á Gróttuvellinum. Leikurinn einkenndist af jafnræði til að byrja með en um miðjan hálfleikinn átti Viggó skot í þverslá úr aukaspyrnu. Stuttu síðar komst Jóhann Páll Ástvaldsson upp vinstri vænginn eftir sendingu frá Viggó, tékkaði inn og sendi boltann í netið framhjá markverði Skagamanna. Staðan í hálfleik var 1-0. Í þeim síðari áttu Gróttumenn hættuleg færi en Skagamenn áttu eitt dauðafæri eftir horn en þá var bjargað á marklínu. Það var síðan Eiríkur Ársælsson sem að skoraði annað mark Gróttu og undir lokin náði Kristófer Magnússon að innsigla sigurinn með góðu marki hægra megin í teignum. 3-0 sigur gegn sterku liði Skagamanna.

