Knattspyrnudeild
Grótta - Leiknir í kvöld
Knattspyrna - Mfl. karla
Í kvöld kl. 19:00 koma Leiknismenn í heimsókn á Gróttuvöllinn í 17. umferð Íslandsmótsins. Breiðhyltingar tróna þessa stundina á toppi 1. deildarinnar með 34 stig á meðan Gróttuliðið er í 9. sæti með 16 stig. Fyrri leik þessara liða í sumar lauk með 2-1 sigri Leiknis þar sem Gróttuliðið var með unninn leik í höndunum þegar 15 mínútur voru eftir. Í kvöld er því kjörið tækifæri að svara fyrir þær ófarir.
Okkar menn þurftu að lúta í lægra haldi fyrir Fjölni á fimmtudaginn en það var fyrsti tapleikur liðsins í rúman mánuð. Höfðu strákarnir þá spilað sex leiki í röð án taps. Nú hafa náðst sigrar í þremur heimaleikjum í röð og um að gera að halda því áfram. Gamla vígið á Gróttuvellinum virðist vera að myndast á ný og eiga áhorfendur að sjálfsögðu sinn þátt í því. Stuðningsmenn Gróttu hafa verið frábærir í síðustu leikjum og stutt vel við bakið á sínum mönnum.
Gróttuborgararnir verða að venju byrjaðir að malla á grillinu klukkutíma fyrir leik og því tilvalið fyrir áhorfendur að ná sér í góða orku fyrir átökin í stúkunni.
Höldum heimavallarstuðinu áfram og fjölmennum á völlinn. Stúkan hefur logað í síðustu leikjum og nú er enginn tími til að slá slöku við. Mætum á Gróttuvöll í góðum gír og látum vel í okkur heyra!
Allir á völlinn! - Mætum í bláu!
ÁFRAM GRÓTTA

