Knattspyrnudeild
Úrslitakeppni 3. flokks kvenna á morgun á Gróttuvelli
Á morgun, sunnudag, fer fram úrslitakeppni 7-manna bolta 3. flokks kvenna og verður leikið á Gróttuvelli. Stelpurnar í 3. flokki Gróttu eru á meðal keppenda en liðið endaði í öðru sæti A-riðils í sumar eftir sjö sigra og eitt tap. Ásamt Gróttu mæta Sindri, Keflavík og KS/Leiftur til leiks og leika allir við alla í 50 mínútna leikjum.
Fyrstu leikir hefjast 10:00 þegar okkar stelpur mæta Keflvíkingum og kl. 12 á hádegi spilar Gróttuliðið við Sindra. Mótinu lýkur svo kl. 14:00 þegar stelpurnar etja kappi við norðanstúlkur í KS/Leiftri. Það lið sem flest stig hlýtur að loknum þessum þremur umferðum verður sigurvegar Íslandsmótsins í 7-manna bolta.
Við hvetjum að sjálfsögðu sem allra flesta til að leggja leið sína á Gróttuvöllinn í fyrramálið og styðja stelpurnar til sigurs!


