Knattspyrnudeild

Slæmt tap fyrir norðan

22.8.2010

Á föstudagskvöld flugu okkar menn norður yfir heiðar og léku við lið Þórs frá Akureyri. Fyrir leikinn voru Þórsarar í 3. sæti deildarinnar á meðan Grótta var í því 10. Skörð voru í leikmannihópi Gróttu þar sem Bjarni Jakob Gunnarsson tók út leikbann og þeir Bragi Árnason, Sölvi Davíðsson, Kristján Finnbogason, Magnús Gíslason og Dan Howell léku ekki með vegna meiðsla. Skemmst er frá því að segja að Þórsarar tóku okkar menn í bakaríið með 5-0 sigri en þrátt fyrir það var aðeins 1-0 fram á 70. mínútu.

Það var kalt í veðri og frekar blautt í höfuðstað Norðurlands þegar flautað var til leiks um kvöldmatarleytið á föstudag. Heimamenn í Þór byrjuðu leikinn betur og komust yfir á 11. mínútu þegar Ármann Pétur Ævarsson skoraði eftir snarpa sókn. Gróttuliðið efldist við markið og var sterkari aðilinn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Helst skapaðist hætti upp við mark Þórsara eftir horn- og aukaspyrnur hins örfætta Péturs Más Harðarsonar.

Í seinni hálfleik náðu heimamenn að snúa blaðinu við á nýjan leik og fengu ótal færi til að bæta við forskotið. Það tókst að lokum á 69. mínútu þegar Ármann Ævarsson skoraði sitt annað mark í leiknum eftir að hafa prjónað sig fram hjá varnarmönnum Gróttuliðsins. Skömmu áður höfðu Gróttumenn heimtað vítaspyrnu þegar sjálfur Ásmundur Haraldsson var tæklaður inni í vítateig. VIð annað mark Þórs var sem okkar menn gæfu upp öndina og allar flóðgáttir opnuðust. Á 71. mínútu skoraði Jóhann Helgi Hannesson þriðja mark Þórs og einungis mínútu síðar var dæmt víti á Gróttu sem áðurnefndur Ævar skoraði úr og fullkomnaði þannig þrennuna. Eftir þessa feykilegu rispu róaðist leikurinn mikið en þrátt fyrir það ráku Akureyringar fimmta naglann í kistu Gróttuliðsins þegar Kristjánn Steinn Magnússon skoraði með skalla eftir góða fyrirgjöf.

Úrslitin gefa kannski ekki rétta mynd af leiknum en í stöðunni 1-0 var mikið jafnvægi í leiknum og okkar menn allt eins líklegir að jafna metin. Hins vegar hrundi leikur Gróttuliðsins algjörlega við annað markið og einkar slæmt að hleypa svo mörgum mörkum inn á stuttum tíma.

Fulltrúar Gróttuvitanna gerðu sér fer norður og studdu Gróttuliðið eins og herforingjar allan leikinn. Frábært framtak hjá þessum öfluga stuðningsmannahóp sem hefur sýnt mikinn lit í í stúkunni í sumar. 

Þrátt fyrir tapið er Grótta tveimur stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Næsti leikur er á föstudaginn þegar Víkingar koma í heimsókn á Gróttuvöll. Mögnuð stemning hefur myndast á Gróttuvellinum í síðustu leikjum og liðið ekki tapað þar síðan 1. júlí. Það er því um að gera fyrir alla að fjölmenna á völlinn á föstudag og styðja strákana til sigurs.

 

Lið Gróttu í leiknum:

Kjartan Ólafsson, Hrafn Jónsson, Knútur Rúnar Jónsson, Ólafur Páll Johnson, Einar Bjarni Ómarsson, Hafsteinn Bjarnason, Ásgrímur Sigurðsson (Agnar Sigurjónsson '76), Pétur Már Harðarson (Brynjólfur Bjarnason '75), Grétar Ali Khan (Ásmundur Haraldsson '56), Garðar Guðnason, Elvar Freyr Arnþórsson  

Ónotaðir varamenn: Davíð Ingi Daníelsson, Sölvi Davíðsson  

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.