Knattspyrnudeild

Gróttustelpur Íslandsmeistarar í 7-manna bolta 3. flokks

23.8.2010

Í gær fór fram úrslitakeppni 3. flokks kvenna í 7-manna bolta en leikið var á Gróttuvelli. Stelpurnar í 3. flokki Gróttu voru þar meðal þátttakenda ásamt Sindra, KS/Leiftri og Keflavík. Leiknar voru þrjár umferðir þar sem allir léku við alla og stigahæsta liðið stóð uppi sem sigurvegari. Það er ekki leiðinlegt að segja frá því að lið Gróttu hafi endaði fremst meðal jafningja og tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með tveimur sigrum og einu jafntefli. Mikil fagnarlæti brutust út hjá stelpunum, þjálfurum og foreldrum en þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitilinn í sögu kvennafótboltans hjá Gróttu.

Hér verður farið stuttlega yfir leiki sunnudagsins:

10:00 - Grótta - Keflavík

Það var eins og Gróttustelpurnar væru ekki almennilega vaknaðar þegar leikurinn var flautaður á og fljótlega voru Keflvíkingar komnir í 1-0 eftir klaufagang í Gróttuvörninni. Við markið jafnaðist leikurinn mikið og eftir um 15 mínútna leik náði Sigrún Birna að jafna metin með föstu skoti fyrir utan teig. Stuttu síðar náði Sóley að koma Gróttu yfir með marki eftir frábæran undirbúning frá Dúu. Í síðari hálfleik náði Suðurnesjastúlkur að jafna 2-2 og allt stefndi í jafntefli þegar Ragnhildur tryggði Gróttu nauman sigur með vinstri sleggju fyrir utan teig. Stefanía var frískust í Gróttuliðinu og barðist eins og ljón inni á miðjunni og eins átti Eva Björk góða innkomu í seinni hálfleik. Gríðarlega mikilvægt að ná að landa sigri í fyrsta leik en ljóst að liðið þyrfti að eiga mun betri leik á móti sterku liði Sindra kl. 12:00

12:00 - Grótta - Sindri

Þá var komið að leiknum sem leikmenn og þjálfarar höfðu beðið eftir í allt sumar. Sindrastúlkur höfðu farið ósigraðar í gegnum riðlakeppnina en síðastliðinn miðvikudag sigruðu þær Gróttustelpurnar örugglega 4-1 á Sindravöllum í Hornafirði. Gróttuliðið mætti gríðarlega vel stemmt til leiks og tók fljótlega öll völd á vellinum. Eftir um 10 mínútna leik náði Sóley að koma Gróttu yfir með stórglæsilegu marki þar sem hún lék á þrjá varnarmenn Sindra og skoraði með glæsilegu skoti yfir markvörð gestanna. Áfram hélt stórsókn Gróttu og á stuttu tímabili skaut Sóley í þverslána og Steffa í stöngina. Mikils pirrings gæti hjá Sindrastelpum sem vissu hreinlega ekki hvenig þær ættu að bregðast við því að lenda undir. Þrátt fyrir það náðu þær að jafna metin rétt fyrir leikhlé með marki eftir hornspyrnu.

Í síðari hálfleik lék Sindri undan sterkum vindi en það kom ekki í veg fyrir að Gróttustelpur byrjuðu betur og kæmust yfir. Sóley átti þá fast skot sem markvörður Hornfirðinga náði ekki að halda og missti knöttinn inn fyrir línuna. Síðustu 10 mínútur leiksins náði Sindraliðið að setja gríðarlega pressu á Gróttuliðið án þess þó að koma inn marki og glæsilegur 2-1 sigur Gróttustelpnanna staðreynd og liðið með pálmann í höndunum fyrir síðasta leikinn. Sóley átti ótrúlegan leik í framlínunni en einnig var Dúa frábær í vörninni og hélt sterkum sóknarmönnum Sindra algjörlega í skefjum. Ragga átti magnaðan leik á hægri vængnum og loks spilaði Birna í 4. flokki allan leikinn á miðjunni og stóð sig vel.

14:00 - Grótta - KS/Leiftur

Það var sem þreytu væri farið að gæta í Gróttuliðinu sem byrjaði leikinn við KS/Leiftur allt og rólega og náði alls ekki að nýta sér sterkan vindinn nægilega vel. Rétt fyrir lok hálfleiksins kom þó fyrsta markið en það skoraði Eva Björk eftir góðan undirbúning frá Sóleyju. Í síðar hálfleik fengu Gróttustelpurnar fjölmörg tækifæri til að skora annað markið og gera út um leikinn en ekkert gekk og svöruðu KS/Leiftur fyrir sig með marki um miðjan hálfleikinn. Fór þá nokkuð um Gróttuliðið og aðstandendur þess þar sem jafntefli myndi duga til sigurs en ekki tap.

Það önduðu því allir léttar þegar Sóley var felld innan vítateigs og vítaspyrna dæmt þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Þrátt fyrir að standa í markinu fór Sigrún Birna á punktinn enda óumdeild vítaskytta liðsins. Henni brást ekki bogalistinn frekar en fyrri daginn og Gróttuliðið komið í 2-1 og héldu kannski margir að björninn væri unninn. Norðanstúlkur voru hins vegar ekki á sama máli og jöfnuðu metin í næstu sókn og staðan því 2-2 og tvær mínútur eftir. Varð þá uppi fótur og fit og mikill taugatitringur þar sem KS/Leiftur fékk mörg tækifæri til að ná skoti á markið og gera út um leikinn. Eitt þrumuskotanna rataði á markið rétt fyrir leikslok en það greip Sigrún í markinu örugglega og stuttu síðar flautaði dómari leiksins leikinn af og Íslandsmeistaratitill í höfn! Sigrún átti stórleik í markinu og bjargði Gróttuliðinu margoft. Eins áttu Hrafnhildur og Auður fínan leik í vörninni.

Ragnhildur og Dúa fagna sigri    Verðlaunaafhending

Auður Ásta og Sigrún Birna, fyrirliðar 3. flokks, tóku svo við bikarnum úr höndum fulltrúa KSÍ við mikinn fögnuð viðstaddra en eins og áður hefur komið fram er þetta fyrsti Íslandsmeistaratitill í kvennaflokki hjá knattspyrnudeild Gróttu. Fyrir hafa tveir titlar unnist hjá strákunum - D-lið 6. flokks varð Íslandsmeistari sumarið 2006 og síðastliðið haust sigraði meistaraflokkur 2. deildina.

Uppistaðan í liðinu eru stelpur fæddar 1994 en þær hafa æft fótbolta síðastliðin 6-7 sumur. Á vordögum 2009 endurreisti Magnús Örn Helgason 3. flokk kvenna hjá Gróttu og hafa stelpurnar æft undir hans stjórn síðan. Síðasta sumar tóku stelpurnar þátt í tveimur mótum og Íslandsmótinu innanhúss í vetur. Þetta árið var ákveðið að taka þátt í Íslandsmóti 7-manna liða þar sem ekki var nægur mannskapur fyrir 11-manna bolta. Á tímabilinu hafa 5 stelpur úr 4. flokki spilað með 3. flokknum og staðið sig afar vel. Tvær þeirra, Birna Rún og Hrafnhildur, voru með liðinu í úrslitakeppninni og eiga sinn þátt í velgengninni á sunnudag.

Um kvöldið fór svo allur hópurinn út að borða á Hamborgarafabrikkuna en Gróttustelpurnar fengu verðskuldaða athygli á staðnum enda með medalíu um hálsinn og bikar uppi á borði.


Þessar skemmtilegu myndir tók stórljósmyndarinn Eyjólfur Garðarsson en hann hefur fylgt liðinu í allt sumar og tekið frábærar myndir. Myndasíðu Eyjólfs má skoða hér: http://www.quake.is/myndir/gallery/album251

 

Sóley undrandi á gullverðlaununum

 

3. flokkur kvenna 2010

3. flokkur kvenna: Efsta röð: Magnús Örn Helgason, Hrafnhildur Arna Nielsen, Birna Rún Erlendsdóttir, Eva Björk Davíðsdóttir, Andrea Wendel, Orri Axelsson

Miðröð: Sigrún Birna Arnardóttir, Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir, Auður Ásta Baldursdóttir, Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir

Neðsta röð: Sóley Arnarsdóttir,Stefanía Hanna Pálsdóttir

 


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.