Knattspyrnudeild

Guðmundur Bragi og Bjarni Freyr skrifa undir hjá Gróttu

24.8.2010

Á dögunum samdi stjórn knattspyrnudeildar við tvo leikmenn félagsins, þá Guðmund Braga Árnason og Bjarna Frey Ingólfsson. Bragi er 21 árs leikmaður meistaraflokks og á að baki 38 leiki fyrir Gróttu. Bragi leikur oftast sem miðjumaður og er þekktur fyrir mikla hörku og óþrjótandi baráttuþrek. Bjarni Freyr er 18 ára gamall markvörður og hefur leikið með Gróttu allan sinn feril að undanskyldu sumrinu 2007 þegar hann spilaði með KR.

Guðmundur Bragi Árnason fæddist þann 27. júlí árið 1989. Líkt og aðrir strákar á Nesinu byrjaði Bragi snemma í fótboltanum og gat þá leikið hvar sem er á vellinum. Í 4. flokki var Bragi hluti af A-liðinu sem endaði í öðru sæti C-riðils og tryggði þar með sæti í B-riðli. Í 3. flokki hélt Bragi áfram að vera mikilvægur hlekkur í liðinu en á eldra ári náði 3. flokkurinn í silfur á Tivoli Cup í Danmörku og tapaði 4-3 fyrir KA í úrslitaleik um sæti í B-riðli. Á sínum yngri árum þótti Bragi liðtækur handboltamaður og var nokkrum sinnum valinn í yngri landslið Íslands. 17 ára gamall lagði þessi sterki miðjumaður handboltaskóna á hilluna til að einbeita sér að fótbolta og var þá ekki að sökum að spyrja. Á sínu síðasta ári í 2. flokki spilaði Bragi fyrst með meistaraflokki en þá hafði Ásmundur Haraldsson hrifist af spilamennsku drengsins og veðjaði á hann í fyrsta leik Gróttu í 2. deildinni. Bragi er nú að leika sitt þriðja tímabil með meistaraflokki og þykir vera einn af mikilvægari leikmönnum liðsins í dag.
 
Bjarni Freyr Ingólfsson fæddist þann 17. mars árið 1992. Bjarni byrjaði snemma að æfa fótbolta með Gróttu og lágu vegir hans fljótlega milli stanganna þar sem hann hefur verið síðan. Eins og áður sagði lék Bjarni upp alla yngri flokkana með Gróttu en söðlaði um sumarið 2007 og lék með KR í eitt ár. Bjarni Freyr spilaði lítið á síðasta tímabili en hefur komið feykilega sterkur inn á þessu ári og átt hvern stórleikinn á fætur öðrum. Frammistaða hans á KR-velli þegar 2. flokkur lék við KR í bikarkeppninni er sérstaklega eftirminnileg þar sem Bjarni Freyr átti hverja glæsimarkvörsluna á fætur annarri og átti stóran þátt í að koma Gróttuliðinu alla leið í framlengingu. Þess má geta að Bjarni Freyr er fyrsti leikmaður 2. flokks til að skrifa undir samning en flokkurinn er sem stendur í harðri baráttu um að komast upp úr C-riðlinum.
 
Stjórn knattspyrnudeildar fagnar því að hafa skrifað undir samning við þessa sterku leikmenn og vonar um leið að þeir muni halda áfram að gera góða hluti fyrir Gróttu á næstu árum.
 
Á myndunum hér að neðan má sjá Braga og Bjarna við undirritun samninganna ásamt stjórnarmönnunum Jóni og Hilmari Sigurðssonum.
 
 
Bjarni Freyr Ingólfsson skrifar undir samning við Gróttu
 
Jón, Bragi og Hilmar   Jón, Bjarni Freyr og Hilmar

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.