Knattspyrnudeild
A-lið 5. flokks í úrslitakeppni Íslandsmótsins
Eftir harða baráttu í efri hluta B-riðilsins í sumar hefur A-liði 5. flokks tekist að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins í fótbolta. Strákarnir enduðu í 3. sæti riðilsins með sjö sigra, eitt jafntefli og tvö töp. C-liðið náði einnig þriðja sæti í sínu riðli en aðeins tvö C-lið úr B-riðli fara í úrslitakeppnina. Svekkjandi fyrir strákana sem hafa staðið sig mjög vel í sumar og unnið átta leiki af tíu.
B-lið 5. flokks endaði neðarlega í sínum riðli með einn sigur og þrjú jafntefli. Þá er ekki öll sagan sögð því að í sumar tók B-liðið miklum framförum og náðu betri og betri úrslitum eftir því sem á leið Íslandsmótið. Margir sem hófu leik í B-liðinu í vor hafa fengið tækifæri með A-liðinu í sumar og staðið sig vel.
D-liðið endaði líkt og B-liðið frekar neðarlega í sínum riðli með tvo sigra í sumar. Þeir voru áftur á móti einstaklega nálægt því að ná góðum úrslitum í mörgum leikjanna sem enduðu gjarnan með eins til tveggja marka tapi. Nokkrir strákar úr 6. flokki hafa spilað með D-liðinu í sumar og staðið sig virkilega vel og koma því vel í stakk búnir fyrir 5. flokkinn í haust.
Eins og áður sagði tryggði A-liðið sér þátttökurétt í úrslitakeppninni með því að vinna tvo síðustu leiki sína gegn Selfoss og Ægi/Hamar. Í úrslitakeppninni leika tólf lið í þremur riðlum. Gróttustrákarnir mæta HK, Stjörnunni og Hetti og fara leikirnir fram um næstu helgi á Stjörnuvelli. Fyrir áhugasama má sjá leikjaplanið hér: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=21524


