Knattspyrnudeild

Stórt tap í slökum leik

28.8.2010

Ţađ var prýđilegt veđur á Seltjarnarnesinu í gćrkvöldi ţegar liđ Víkings frá Reykjavík mćtti á Gróttuvöll til ađ etja kappi viđ heimamenn í Gróttu. Fyrir leikinn spáđu flestir Víkingum sigri enda í harđri baráttu um sćti í úrvalsdeild. Gróttuliđiđ var aftur á móti í 10. sćti og tveimur stigum frá fallsćti. Margt var um manninn á vellinum og góđ stemning ţegar leikurinn var flautađur á.

Ţađ voru gestirnir sem mćttu einbeittir til leiks og nýttu sér strax á fjórđu mínútu vandrćđagang í vörn Gróttu. Ţá var boltanum fleytt inn í vítateig Gróttu eftir innkast ţar sem Ţorvaldur Sveinn Sveinsson var einn á auđum sjó á markteig og skallađi boltann auđveldlega í netiđ. Víkingar héldu uppteknum hćtti og á 17. mínútu náđi Helgi Sigurđsson ađ auka muninn međ góđu skallamarki í slá og inn.

Eftir seinna markiđ virtust okkar menn loksins vakna til lífsins og hófu ađ skapa sér fleiri góđar sóknir. Hinn ungi Viggó Kristjánsson komst nćst ţví ađ skora ţegar hann átt gott skot úr ţröngu fćri en Magnús Ţormar, markvörđur Víkinga, sá viđ honum. Magnús Gíslason og Garđar Guđnason gerđust einnig ađgangsharđir upp viđ mark Víkinga án ţess ţó ađ skapa mikla hćttu.

Seinni hálfleikur hófst međ miklum látum og greinilegt ađ Gróttumenn ćtluđu sér ađ koma marki á gestina. Besta fćri Gróttu átti Magnús Gíslason ţegar hann gerđi vel í ađ skalla boltann úr miđjum vítateignum en beint á nafna sinn Ţormar í Víkingsmarkinu. Allt var í járnum ţar til á 55. mínútu ţegar vendipunktur varđ í leiknum en ţá skoruđu Víkingar sitt ţriđja mark. Ţar var ađ verki Viktor Örn Guđmundsson međ hnitmiđuđu skoti í fjćrhorniđ framhjá Kristjáni Finnbogasyni eftir góđa skyndisókn Víkinga.

Viđ ţetta var sem slökkt vćri á liđi Gróttu og Víkingar tóku í kjölfariđ öll völd á vellinum. Marteinn Briem jók muninn enn frekar fjórum mínútum síđar međ međ góđu skoti í stöng og inn. Á 65. mínútu gerđist umdeilt atvik ţegar dćmt var víti á Gróttu fyrir fremur litlar sakir. Ţá var miđjumađurinn Kristinn Jóhannes Magnússon utarlega í vítateig Gróttumanna og féll, ađ ţví er virtist, auđveldlega viđ ţegar varnarmađur Gróttu reyndi ađ ná af honum boltanum. Línuvörđurinn gekk í gildruna og flaggađi umsvifalaust víti. Hinn gamalreyndi Helgi Sigurđsson fór á punktinn og skorađi af öryggi.

Á 70. mínútu náđu heimamenn ađ klóra í bakkann međ ágćtu marki. Ţá sendi Guđmundur Bragi Árnason háan bolta inn í vítateig Víkinga, boltinn var skallađur frá beint fyrir fćtur Ásgríms Sigurđssonar sem hamrađi knöttinn neđst í markhorniđ.

Víkingar voru ţó ekki hćttir og veittu Gróttumönnum enn eitt kjaftshöggiđ á 74. mínútu en ţá skorađi Marteinn Briem sitt annađ mark međ góđu skoti úr vítateig. Harla fátt gerđist síđasta korteriđ og hálfpartinn eins og leikmenn vćru ađ bíđa eftir ţví ađ flautađ vćri til leiksloka.
Jóhann Páll Ástvaldsson, leikmađur 2. flokks, kom inná og lék í 20 mínútur en ţetta var fyrsti deildarleikur Jóhanns fyrir meistaraflokk Gróttu.

Niđurstađan ţví feykilega öruggur sigur Víkinga sem viđ sigurinn settust í toppsćti 1. deildarinnar međ 38 stig en Leiknir og Ţór eiga leiki til góđa á morgun. Gróttuliđiđ heldur 10. sćtinu, í bili a.m.k., en međ sigri á Njarđvík á morgun getur Fjarđabyggđ skotist upp í 10. sćtiđ.

Međ leiknum viđ Víking var Grótta ađ ljúka fjögurra leikja törn viđ efstu liđ deildarinnar og var uppskeran úr ţeim leikjum einungis eitt stig. Ţađ er ţví ljóst ađ síđustu ţrjár umferđir deildarinnar verđa gífurlega spennandi, bćđi á toppnum og botninum.
Nćsti leikur okkar manna er á laugardaginn ţegar viđ sćkjum heim Skagamenn hinum megin viđ Faxaflóann. Leikurinn hefst kl. 14:00 og eru allir hvattir til ađ leggja leiđ sína upp á Skaga og fylgjast međ okkar mönnum spila á fornfrćgum velli ÍA-liđsins.
 
Liđ Gróttu í leiknum:
Kristján Finnbogason, Enric Már du Teitsson (Ólafur Páll Johnson '60), Knútur Rúnar Jónsson, Bjarni Jakob Gunnarsson, Einar Bjarni Ómarsson, Guđmundur Bragi Árnason, Ásgrímur Sigurđsson, Garđar Guđnason (Jóhann Páll Ástvaldsson '70), Viggó Kristjánsson, Dan Howell, Magnús Bernhard Gíslaon (Agnar Sigurjónsson)
 
Ónotađir varamenn: Kjartan Ólafsson, Ásmundur Haraldsson



 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síđu:



fotbolti4
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.