Knattspyrnudeild
Fjórir frá Gróttu á úrtökumót KSÍ á Laugarvatni
Helgina 20-22. ágúst fór fram úrtökumót KSÍ á Laugarvatni þar sem 60 efnilegum fótboltastrákum fæddum 1995 var boðið að taka þátt. Grótta átti fjóra í þessum flotta hópi en það voru þeir Björn Valdimarsson, Gunnar Kolbeinsson, Helgi Hilmarsson og Sæmundur Ólafsson. Breiðablik átti sjö leikmenn í hópnum og Grótta, Afturelding, Stjarnan og KR fjóra.
Þeir Bjössi, Helgi og Sæmi hafa áður tekið þátt í æfingum á vegum KSÍ en Gunnar var valinn í fyrsta sinn í þetta skiptið. Hópnum var skipt upp í fjögur lið og spilað og æft í þrjá daga undir stjórn og leiðsögn landsliðsþjálfara. Gróttustrákarnir þóttu standa sig með prýði í leikjunum og eiga eflaust möguleika á að hasla sér völl í yngri landsliðum Íslands haldi þeir áfram á sömu braut. Strákarnir fjórir eru á yngra ári í 3. flokki og voru því hluti af liðinu sem náði í brons á Norway Cup í Osló og spilaði föstudaginn 3. september til úrslita um sæti í B-riðli Íslandsmótsins.
Björn Valdimarsson leikur oftast sem miðjumaður og er þekktur fyrir góða boltameðferð og mikinn leikskilning. Bjössi hefur verið í byrjunarliði 3. flokks í síðustu leikjum en í fyrrasumar spilaði hann nokkra leiki upp fyrir sig með A-liðinu. Bjössi starfaði í Knattspyrnuskóla Gróttu í sumar og naut þar mikilla vinsælda sem þjálfari.
Gunnar Kolbeinsson kom bakdyrameginn inn í fótboltann í sumar. Hann hafði þá tekið sér frí frá fótboltanum um veturinn og þótti því ekki líklegur til afreka í sumar. Með mikili vinnu og metnaði náði hann að spila sig inn í A-liðið um mitt tímabil og kórónaði gott sumar með því að vera valinn á Laugarvatn. Gunnar getur bæði leikið sem miðvörður, bakvörður eða miðjumaður en hann les leikinn gríðarlega vel og er sterkur í návígjum á vellinum.
Helgi Hilmarsson er markvörður af dýrari gerðinni. Helgi átti við meiðsli að stríða á síðasta ári en hefur á þessu tímabili verið mjög stígandi og átt fast sæti í A-liði 3. flokks. Helgi átti frábært mót á Norway Cup en hann með sterka vörn fyrir framan sig hélt hreinu í meirhluta leikjanna. Þessi efnilegi markvörður er góður á milli stanganna, sterkur einn á móti einum og er einnig þekktur fyrir mikla jákvæðni og baráttugleði vellinum.
Sæmundur Ólafsson getur bæði leikið á miðjunni og á kantinum en Sæmi er einstaklega vinnusamur og baráttuglaður leikmaður og jafnframt eldsnöggur með knöttinn. Sæmi hefur verið inn og út úr A-liðinu í sumar og gjarnan spilað lykilhlutverk með B-liðinu sem var nálægt því að tryggja sig í úrslit í síðasta leik. Líkt og Bjössi vann Sæmundur gott starf í Knattspyrnuskóla Gróttu í sumar.
Við óskum þessum efnilegum strákum til hamingju með valið og vonumst til að sjá meira til þeirra allra í vetur og næsta sumar.


Hér er Helgi lengst til vinstri í efri röð en Bjössi annar frá vinstri í neðri röð. Liðið lék í Haukabúningnum.

