Knattspyrnudeild
3. flokkur í úrslitaleik um sæti í B-riðli á morgun á Gróttuvelli!
Á morgun kl. 16:30 leikur 3. flokkur karla umspilsleik um sæti í B-riðli. Gróttustrákarnir komust í umspilið á bestum árangri í öðru sæti en þrír C-riðlar voru spilaðir í sumar. Andstæðingur Gróttu verður lið KS/Tindastóls/Hvatar en eins og nafnið gefur til kynna er liðið skipað strákum frá Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði og Ólafsfirði. Í hinum leiknum spilar Aftuelding við Breiðablik 2. Leikurinn fer fram á Gróttuvelli og eru allir hvattir til að mæta á völlinn og styðja strákana í þessum mikilvæga leik.
Sumarið hjá 3. flokki hefur verið ansi kaflaskipti. Gróttuliðið hóf tímabilið af krafti og sigraði Aftureldingu 6-1 í fyrsta leik en missteig sig svo í kjölfarið með jafntefli við Val og tapi gegn Njarðvík. Öruggir sigrar unnust á KFR og Hamar/Ægi og fyrri umferð því lokið. Útileikurinn við Mosfellinga fór á versta veg með 3-2 sigri heimamanna þar sem Gróttustrákarnir voru með unninn leik í höndunum. Eftir þau vonbrigði létu strákarnir ekki deigan síga heldur lömdu liðið saman, fóru á Norway Cup og tóku bronsið og rúlluðu upp því sem eftir var af Íslandsmótinu. Það dugði í besta annað sætið af þessum þremur riðlum og á 3. flokkur því möguleika á að skjóta Gróttu upp um riðil á föstudaginn.
3. flokkur Gróttu hefur um árabil verið í harðri baráttu um að komast upp í B-riðil. Sumarið 2004 lék 3. flokkur umspilsleik í Grindavík og beið lægri hlut 4-1. Að ári voru strákarnir hans Bjögga Finns. aftur í eldlínunni og nú gegn KA-mönnum í leik á Blönduósi. Leikurinn var einn sá dramatískasti sem sögur fara af en eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik kom Gróttuliðið til baka og komst yfir 3-2 en Akureyringar svöruðu um hæl og leikurinn fór í framlengingu. Á síðustu mínútu hennar lumaði KA inn marki og sigraði leikinn 4-3. Í þessum 3. flokki eru hvorki fleiri né færri en sex leikmenn sem hafa komið við sögu hjá meistaraflokki síðasta árið, þeir Pétur Már Harðarson, Guðmundur Bragi Árnason, Einar Bjarni Ómarsson, Hafsteinn Bjarnason, Magnús Örn Helgason og Arnar Freyr Gunnsteinsson.
Árin 2007 til 2009 var 3. flokkur nokkrum stigum frá sæti í umspili. Það er því ljóst að baráttan verður hörð hjá strákunum á morgun allt verði lagt í sölurnar fyrir sætið eftirsótta í B-riðlinum.
Mætum á Gróttuvöllinn á morgun og styðjum Helga, Sölva, Gunna Birgis, Viktor, Pétur Th, Villa Hauks, Bjarka, Gunna K., Bjössa, Krissa, Hjalta, Björn Axel, Sæma, Tomma, Ómar, Villa, og 3. flokkinn allan til sigurs!


