Knattspyrnuskóli

5.flokkur_i_fotbolta

20.5.2010 Knattspyrnuskóli : Sumarnámskeið fótboltans

Knattspyrnudeild verður með knattspyrnuskóla fyrir krakka fædd á árunum 2000 til 2004 en það eru krakkar sem verða í 1.-5. bekk næsta haust. Knattspyrnuskólinn er frá kl. 9:00-12:00 frá mánudegi til föstudags. Í sumar verður boðið upp á sérstakan afreksskóla fyrir stráka og stelpur í 5.flokki og 4.flokki en það eru krakkar sem voru að klára 5.-8. bekk í vor. Æft verður 4x í viku fyrir hádegi í 6 vikur. Hægt er að vera á námskeiðinu í viku og viku. Nánar má lesa um námskeiðin ef smellt er á lesa meira. Lesa meira
 
Sigurður Ragnar í heimsókn

16.6.2009 Knattspyrnudeild : Sigurður Ragnar í heimsókn í Afreksskólanum í dag

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu var gestur á Afreksskólanum í morgun. Hann var með 80 mínútna æfingu og tók svo létt spjall við krakkana í lokin. Mikill fengur fyrir Gróttu að fá mann eins og Sigurð til að koma og spjalla við krakkana. Í gær komu þeir Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði KR og Bjarni Guðjónsson og voru með krökkunum í skotæfingum og vítaspyrnukeppnum. Í lok vikunnar mun síðan Ólafur Kristjánsson koma í heimsókn í Afreksskólann. Kristján Finnbogason markvörður Gróttu mun síðan vera gestur knattspyrnuskólans á föstudaginn kemur. Hann kemur síðan aftur í skólann ef einhverjir missa af honum í þessari viku. Lesa meira
 

23.5.2009 Sumarnámskeið : Afreksskóli knattspyrnudeildar sumarið 2009

Í sumar verður boðið upp á sérstakan afreksskóla fyrir stráka og stelpur í 5.flokki og 4.flokki en það eru krakkar sem voru að klára 5.-8. bekk í vor. Æft verður 3x í viku fyrir hádegi í 4 vikur. Æfingarnar verða að mörgu leyti öðruvísi en hefðbundnar fótboltaæfingar en meðal annars verður farið í tækni, leikfræði, og annað tengt fótboltanum. Krakkarnir æfa þá tvisvar á dag með hefðbundnum æfingum en æfing að morgni til gæti verið fyrirlestur eða tækniæfing útá velli. Lesa meira
 

23.5.2009 Sumarnámskeið : Knattspyrnuskóli Gróttu sumarið 2009

Knattspyrnudeild verður með knattspyrnuskóla fyrir krakka fædd á árunum 1998 til 2002 en það eru krakkar sem verða í 1.-5. bekk næsta haust. Knattspyrnuskólinn er frá kl. 9:00-12:00 frá mánudegi til föstudags. Margt verður til gamans gert, m.a. munu þekkt andlit kíkja í heimsókn en að auki verða margs konar keppnir s.s. HM, vítakeppni og knattþrautir. Lögð verður áhersla á að kenna grunnþætti knattspyrnunnar með skemmtilegum leikjum og æfingum. Lesa meira
 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.