Sumarnámskeið

Sumar 2

Fimleikanámskeið í sumar fyrir 6-11 ára stúlkur 2008

Fimleikadeild

8.4.2008

Fimleikadeild Gróttu verður með fimm námskeið fyrir 6-11 ára stúlkur (f.1997-2002) í sumar. Námskeiðin eru ætluð stúlkum sem að æfðu fimleika í vetur og eru kl. 9-12 alla virka morgna. Stúlkunum verður skipt í hópa á æfingunum eftir aldri og færni í fimleikaæfingum. María Björg Magnúsdóttir, Sesselja Järvelä og Sigríður Harðardóttir hafa umsjón með námskeiðunum. Auk þess koma aðrir þjálfarar hjá fimleikadeildinni inn í þjálfunina.

Skráning fer fram með því að senda skráningu á fimleikar@grottasport.is fyrir 15. maí. Einnig er hægt að nálgast skráningarblað hjá þjálfurum fimleikadeildar. Ef að færri en 15 stúlkur skrá sig á námskeið þá verður viðkomandi námskeið fellt niður. Hvert námskeið kostar 10.000.- krónur, en ef farið er á fleiri en eitt námskeið þá kostar hvert námskeið 8.000.-krónur .

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um námskeiðin með því að senda póst á fimleikar@grottasport.is eða hringja í Sesselju í síma 893-6658 á miðvikudögum á milli kl. 11 og 12.

Námskeið:
1: 9.-20. júní
2: 23.júní-4. júlí
3: 7. júlí-18.júlí
4: 21. júlí-1.ágúst
5: 5.-15. ágúst.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.