Aðalstjórn

Málefni Gróttu - Svör framboða til sveitastjórnarkosninga

Íþróttafélagið Grótta

27.5.2010

Seltjarnarnes er íþróttabær en um 1000 iðkendur eru í Gróttu og hafa aldrei verið fleiri. Ef foreldrar eða aðrir aðstandendur iðkendanna er bætt við, þá eru um 3000 manns af þeim 4600 íbúum bæjarins sem tengjast félaginu með einum eða örðum hætti. Tengsl félagsins við íbúa bæjarins er því mjög mikil. Íþróttafélagið Grótta fékk oddvita framboðanna á Nesinu til sveitastjórarkosninga til að svara nokkrum spurningum um stefnumál þeirra í íþróttamálum og málefnum íþróttafélagsins Gróttu.

Spurningarnar sem framboðin fengu voru:

1. Hver er stefna þíns flokks í málum Íþróttafélagsins Gróttu. t.d varðandi þann styrk sem bæjarfélagið veiti félaginu. Grótta sinnir gríðarlega mikilvægu forvarnar- og uppbyggingarstarfi á Seltjarnarnesi.

2. Eitt af helstu baráttumálum félagins er stækkun á fimleikahúsi, núverandi aðstaða er löngu sprungin og heftir núverandi aðstaða uppgangi deildarinnar. Stækkun fimleikahúss var lofað árið 2011 en við fjármálakreppuna var henni frestað um óákveðinn tíma. Hver er stefna þíns flokks varðandi stækkun á fimleikahúsi?

3. Ein af kröfum afreksmannastefnu í meistaraflokkum félagsins, sem eru fyrirmyndir hinna yngri og andlit félagsins útávið er að hafa góða lyftingaaðstöðu. Félagið hefur ekki aðgang að svona aðstöðu nema í gegnum World Class og Grótta þarf að greiða töluverða fjármuni til þess. Hvaða leiðir sér þinn flokkur til að vinna að betri og ódýrari lausn svo afreksmenn félagsins og aðrir iðkendur hefðu aðgang að lyftingaaðstöðu?

4. Hver er stefna ykkar í íþróttum hér á Seltjarnarnesi?

____________________________________________________________________________

Svör Framsóknarflokksins og óháðra

1. Eðlilegt er að bæjarfélagið geri þjónustusamninga við íþróttafélög sem starfa innan bæjarfélagsins um þá þjónustu sem bæjaryfirvöld og íþróttafélögin verða sammála um að æskilegt sé að íþróttafélögin sinni fyrir bæjarfélagið hverju sinni. Markmið slíkra samninga á að vera hluti af almennri heilsuvakningu allra aldurshópa í samfélaginu með hæfilegri blöndun við keppnisíþróttir. Sérstaklega þarf að tryggja aðgengi og þátttöku barna og ungmenna að fjölbreyttu íþróttastarfi án þess að efnahagur foreldra hindri þátttöku þeirra. Tómstundastykrur barna og ungmenna er þáttur í því. B-listi Framsóknar og óháðra leggur því áherslu á áframhaldandi stuðning við Gróttu og það góða starf sem félagið hefur unnið.

2. Forgangsmál næsta kjörtímabils er að tryggja aftur fjárhag og rekstur bæjarins svo hægt verði til lengri tíma að tryggja öflugan stuðning við íþróttalíf hér á Nesinu. Of skuldsett bæjarfélag verður lítil stoð fyrir íþróttafélögin. Stækkun fimleikahúss á að gerast í samvinnu við Gróttu sem og samkomulag um forgangsröðun innan Gróttu á fjárhagslega mögulegum verkefnum m.t.t. annarra brýnna verkefna bæjarfélagsins.

3. Lyftingaaðstaða afreksmanna þarf ekki að vera kostnaðarsöm og ekki þörf á íburði í þeim efnum samanber „Jakaból“. Talsvert er nú af ónotuðu húsnæði, skemmum og öðru í bænum. Eðlilegt er að Grótta hafi frumkvæði að forgangsröðun verkefna á þessu sviði og vinni í samvinnu við bæjarfélagið að ódýrum lausnum á þessum vanda sem spara peninga til lengri tíma. Einnig er eðlilegt að leita að styrktaraðilum til að leysa slík sértæk verkefni fyrir afreksmenn.

4. Almennt lítur B-listinn á íþróttir sem mikilvægt tæki til að bæta félagslega, andlega og líkamlega líðan Nesbúa. Gott almennt íþróttastarf byggt á góðum fjárhagslegum grunni eykur lífsgæði í bæjarfélaginu með almennri heilsueflingu. Íþróttastarf er mikilvægt fyrir alla aldursflokka því lengi býr að fyrstu gerð og því þarf að leggja sérstaka áherslu á slíkt starf fyrir yngstu kynslóðirnar. Fjölbreytt íþróttastarf og valmöguleikar til íþróttaiðkunar eru mikilvægir þættir í þjónustu við bæjarbúa. Þannig ræður notandinn, eftir áhugasviðum, getu og þörfum, mestu um notkun eðlilegs fjármagns af hálfu bæjarins á hvern einstakling. Íþróttastarf í bæjarfélaginu mun áfram sem hingað til byggjast talsvert á sjálfboðaliðum, foreldrum og öðru áhugafólki og skipulögðum félagssamtökum þeirra eins og Grótta er gott dæmi um. Þetta þarf bæjarfélagið að styðja við með eðlilegum gegnsæjum samningum um markmið, stefnu og gagnkvæman stuðning, öllum bæjarbúum til hagsbóta. Framsókn og óháðir leggja áherslu á að Gróttu verði áfram unnt að standa að öflugu íþróttastarfi sem eflir heilsu og sjálfsmynd bæjarbúa.

_____________________________________________________________________________

Svör Sjálfstæðisflokksins

1. Það var að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins sem gerður var þjónustusamningur á milli Seltjarnarnesbæjar og íþróttafélagsins Gróttu. Tilgangur þjónustusamningsins er að styrkja rekstrargrundvöll félagsins og stuðla að markvissu og öflugu forvarnar- og uppbyggingarstarfi í þágu barna, ungmenna og meistaraflokka, þannig að félagið geti veitt iðkendum sýnum sem besta þjónustu. Sjálfstæðisflokkurinn telur því nauðsynlegt að bæjarfélagið viðhaldi áfram góðu samstarfi við íþróttafélagið til þess að félagið geti ræktað hlutverk sitt. Innan Íþróttafélagsins er unnið öflugt sjálfboðaliðsstarf og framlag sjálfboðaliða ómetanlegt fyrir félagið og samfélagið allt og er því nauðsynlegt að félagið fái áfram rekstrarstyrk.

2. Bæjarstjórn og meirihluti Sjálfstæðismanna samþykkti á sínum tíma stækkun á fimleikahúsi samkvæmt langtímaáætlun bæjarins. Búið er að ljúka við jarðvegsvinnu að hluta í tengslum við undirbúning á stækkun fimleikahússins en efnahagshrunið gerði það að verkum að öll áform um byggingu fimleikahúss hafa frestast um óákveðin tíma. Sjálfstæðisflokkurinn er meðvitaður um að aðstaða fimleikadeildarinnar er orðin aðþrengd og hamlar vexti hennar sé horft til annarra fimleikafélaga. Á undanförnum mánuðum hefur undirbúningshópur um bætta aðstöðu fimleikadeildarinnar verið að störfum og unnið að undirbúningi og þarfagreiningu að stækkun fimmleikahúss með áherslu á að horft sé til framtíðar á alla íþróttamiðstöðina með tilliti til endurskipulagningar á ýmsum rýmum hússins.

3. Þegar Seltjarnarnesbær gerði samkomulag við World Class um samnýtingu á húsnæði laugarinnar í tengslum við heilsuræktina þá varð sú aðstaða sem stóð íþróttafélaginu til boða undir lyftingaraðstöðu að víkja en á móti kom að Grótta átti að fá aðgang á World Class á sanngjörnu verði. Ljóst er að mikill kostnaður fylgir því að kaupa aðgang að World Class og þeim fjármunum mætti kannski verja betur með því að félagið hefði sína eigin aðstöðu. Bærinn kom til móts við félagið og setti upp bráðabirgðar líkamsræktaraðstöðu á áhorfendapöllum í litla sal íþróttamiðstöðvarinnar eftir ósk félagsins. Hugmyndin var að finna félaginu framtíðar aðstöðu með endurskipulagningu á ýmsum rýmum innan íþróttamiðstöðvarinnar í tengslum við stækkun á fimleikaaðstöðunni Sjálfstæðisflokkurinn í samvinnu við íþróttafélagið vill leyta að viðunandi lausn til framtíðar.

4. Stefna Sjálfstæðisflokksins er og hefur ávallt verið að bjóða upp á kröftugt íþróttastarf enda er slík starfsemi mikilvægur hlekkur í öllu forvarnarstarfi. Viðurkenndar kannanir sýna að skipulögð þátttaka ungmenna í íþróttastarfi hefur mikið forvarnargildi. Markmiðið er að gera aðstöðu til íþróttastarfa enn betri og með því besta sem gerist. Glæsileg íþróttamiðstöð og gervigrasvöllur við Suðurströnd ber vitni um vilja meirihluta Sjálfstæðismanna að skapa Seltirningum góðar aðstæður að þessu leyti. Markmiðið er að efla og hvetja fjölskyldur til almennrar þátttöku í íþróttastarfi eins og kostur er. Halda þarf á lofti mikilvægi íþróttastarfs fyrir þroska barna og unglinga og sem vettvangi heilbrigðra lífshátta og samveru fjölskyldunnar. Sjálfstæðismenn munu leggja áherslu á að viðhalda tómstundastyrkjum sem hafa sannað gildi sitt og jafnframt móta íþrótta- og tómstundastefnu fyrir Seltirninga. Stefnu þessari er ætlað að treysta grunninn og móta framtíðarsýn í íþrótta- og tómstundamálum á Seltjarnarnesi í samvinnu við þau félög er starfa í bænum.

______________________________________________________________________________

Svör Neslistans

1. Að óbreyttu, hvað varðar umfang starfsins og þjónustu, er engin ástæða til breytinga í þessu efni. Æskilegt væri að festa aðkomu bæjarins betur í sessi en nú er.

2. Það er mikilvægt að stækkun fimleikahúss komi til framkvæmda sem fyrst. Þörfin er mikil. Við göngum út frá því að þetta, ásamt byggingu hjúkrunarheimilis, sé næsta uppbyggingaverkefni bæjarins.

3. Við vitum af ýmsum annmörkum og takmörkunum á æfingaaðstöðu fyrir lyftingar meistaraflokka Gróttu og að núverandi fyrirkomulagi fylgir talsverður kostnaður fyrir félagið og teljum að leita verði betri leiða hvað þetta varðar. Eins og er sjáum við ekki neina framtíðarlausn á þessu aðra en að nýta tækifærið samhliða stækkun fimleikahússins og standsetja aðstöðu sem væri alfarið á forræði Gróttu og nýttist einnig fleirum en meistaraflokkunum.

4. Almenn stefna okkar er að virkja skapandi frumkvæði ungs fólks til þess að verja frístundum sínum á þroskavænlegan og mannbætandi hátt. Stuðla að jákvæðri sjálfsmynd ungs fólks og örva áhuga þeirra á heilbrigðu og ábyrgu líferni, sem er m.a. lykilatriði í forvörnum. Efla með ungu fólki þá lífssýn að það sé virkir þátttakendur í umhverfi sínu og samfélagi. Einnig að treysta tómstunda- og íþróttastarf í bænum og gera sem flestum börnum og unglingum kleift að stunda íþróttir og annað tómstundastarf. Hvetja til virkrar og almennrar þátttöku ungmenna í íþróttastarfi, m.a. með almennri notkun tómstundakorta, og styrkja starf íþróttafélaga gegn brottfalli ungmenna úr íþróttum. Neslistinn leggur einnig áherslu á að styðja vel við bakið á almenningsíþróttum og skapa sem bestar aðstæður til útivistar, hreyfingar og almennrar heilsuræktar í bænum.

_______________________________________________________________________________

Svör Samfylkingarinnar

1. Samfylkingin á Seltjarnarnesi leggur ríka áherslu á að því góða starfi sem Grótta hefur sinnt verði haldið áfram. Samfylkingin telur að þeim fjármunum sem veitt er til Gróttu í formi styrks skili sér í aukinni hreyfingu barna og sé um leið ákveðið forvarnarstarf. Þó verður að hafa í huga að ekki vilja öll börn á Seltjarnarnesi taka þátt í keppnisíþróttum og hætta er á að sá hópur verði útundan. Samfylkingin leggur því áherslu á að leitað verði leiða til að koma til móts við þann hóp barna og unglinga, í samstarfi við Gróttu. Brottfall úr íþróttum er algengt meðal unglinga þegar farið er að leggja meiri áherslu á að vinna leiki og mót heldur en að allir séu með. Afar brýnt er að vinna gegn slíku brottfalli þar sem forvarnargildi íþróttaiðkunar er aldrei mikilvægara en á þeim árum sem alls konar freistingar bíða unga fólksins á öðru hverju horni. Því verður samfélagið á Seltjarnarnesi að koma  til móts við það unga fólk  sem vill taka þátt í íþróttastarfi þótt það sé ekki í afreksflokki.  

2. Samfylkingin er nýtt formlegt stjórnmálaafl á Seltjarnarnesi og styður eindregið þá ákvörðun að heimila stækkun fimleikasalarins, en erfiðlega gekk á sínum tíma að fá það samþykkt inn í deiliskipulag Hrólfsskálamels eins og kunnugt er. Í næstu framtíð verður að forgangsraða fjárfestingum á öllum sviðum í starfi bæjarfélagsins, einnig innan íþrótta- og tómstundageirans. En hér er um mótað verkefni að ræða sem hefur mikla möguleika á að komast framarlega í forgangsröðina.

3. Ef Grótta er ósátt við þá stöðu sem nú er uppi í þessum málum vill Samfylkingin endurskoða hana og finna lausn sem myndi henta Gróttu betur. Samfylkingin vill að vel sé búið að ungu fólki á Seltjarnarnesi og að hver og einn geti stundað íþróttir við sitt hæfi.

4. Samfylkingin leggur áherslu á að íþróttir eru fyrir alla og því er nauðsynlegt að bjóða upp á fjölbreytilega hreyfingu og útivist fyrir alla aldurshópa. Íþrótta- og tómstundastarf er mikilvægur þáttur í lífi og uppeldi barnanna og nauðsynlegt að vanda vel til. Íþróttastarf er  öflugt á Seltjarnarnesi og  samstarf og samfella á milli skóla og Gróttu varðandi íþróttaiðkun er til fyrirmyndar. Leggja þarf áherslu á að börn hafi jöfn tækifæri til íþróttaiðkana á Seltjarnarnesi. Hreyfing er holl fyrir alla og eins og rannsóknir sýna stuðlar hreyfing að auknu heilbrigði og betri andlegri líðan. Það er því hagur allra bæjarbúa að hinu góða samstarfi Gróttu og skólans verði haldið áfram.

____________________________________________________________________________

 Við þökkum framboðunum kærlega fyrir þessi svör.

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.