Aðalstjórn

Árlegur haustfagnaður Seltirninga laugardaginn 28. ágúst

Íþróttafélagið Grótta

26.8.2010


Áralöng hefð hefur skapast fyrir því að Seltirningar hittist og lyfti sér upp síðustu helgina í ágúst. Þar verður engin breyting á í ár, þar sem heljarinnar ball verður haldið í Félagsheimilinu þegar Gróttudagurinn er að kveldi kominn.

Nú mun 80´s stemmningin svífa yfir vötnum og hafa engir aðrir en Siggi Hlö og Valli Sport verið fengnir til þess að koma öllum í gírinn og halda uppi stuðinu fram eftir nóttu. Það þarf því engum að dyljast að stemmningin er líkleg til þess að verða án fordæma í Féló þetta laugardagskvöld.
 
Rétt er að taka fram að síðastliðin ár hefur haustfagnaðurinn verði haldinn í Íþróttahúsinu. Mun færri miðar verða því í boði þetta árið en áður.  Mælumst við því með því að fólk hafi hraðar hendur við að tryggja sér aðgöngu. 
 
Forsala aðgöngumiða hefst mánudaginn 23. ágúst á skrifstofu Gróttu, og verður í gangi á opnunartíma skrifstofunnar fram að balli...eða meðan birgðir endast. Miðaverð í forsölu 1500 kr en 2000 kr við dyrnar.
 
Að lokum er rétt að vara Seltirninga við að missa af þessum viðburði... Stemmningin veðrur án fordæma !
 
Spurningum varðandi viðburðinn er hægt að koma á framfæri með því að senda póst á hafstgu@hotmail.com

VHEV_Seltirningar_plakat

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fimleikamynd4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.