Aðalstjórn

Æsispennandi keppni í Gróttubikarnum

Íþróttafélagið Grótta

31.8.2010

Gróttubikarinn 2010 fór fram á Gróttudeginum á laugardaginn. Er þetta í fyrsta skipti sem sú keppni fer fram en framvegis munu meistaraflokkar félagsins keppa innbyrðis um hinn eftirsótta Gróttubikar. Í kvennaflokki kepptu meistaraflokkur kvenna í handbolta og meistarahópur kvenna í hópfimleikum. Í karlaflokki kepptu meistaraflokkur karla í handbolta og meistaraflokkur karla í fótbolta. Báðar þessar keppnir voru æsispennandi en mikill fjöldi fólks fylgist með fyrirmyndum yngri iðkenda spreyta sig í hinum ýmsu keppnisgreinum.

Keppnisgreinarnar voru:

  • 100 m hlaup
  • Sjómann
  • Reipitog
  • Fótboltaspil
  • Limbó
  • Boðhlaup
  • Klemmuleikur

____________________________________________

Kvennaflokkur:

100 metra hlaup
Í 100 metra hlaupi rúlluðu fimleikastelpurnar upp handboltanum og fengu 7 stig gegn 3.

Sjómann
Í sjómanninum vann handboltastelpan Hildur Marín fimleikastelpuna Tinnu Bjarkar, 2-0 en bæði var hægri og vinstri höndin notuð.

Reipitog
Í reipitoginu vann handboltinn fimleikana og fengu 2 stig

Fótboltaspil
Í fótboltaspilinu vann handboltinn fimleikana og fengu 2 stig

Limbó
Í limbóinu þurfti varla að spyrja að leikslokum, fimleikarnir tóku það, 2 stig fyrir þá.

Boðhlaup
Í næstseinustu greininni, boðhlaupinu unnu fimleikarnir nokkuð örugglega og fengu 2 stig

Klemmuleikur
Fyrir seinustu grein var staðan þess vegna 11-9 fyrir fimleikana en klemmuleikurinn gilti tvöfalt. Eftir mikla hörku höfðu handboltastelpurnar betur og unnu þess vegna Gróttubikarinn 2010, 13-11.

____________________________________________

Karlaflokkur:

Segja má að mörg óvænt úrslit hafi orðið í karlaflokki.

100 metra hlaup
Í 100 metra hlaupinu vann handbolta tvöfaldan sigur en Siggi Eggerts og Hilmar Kristins unnu Hrafn Jónsson og Garðar Guðna. 7-3 fyrir handboltann

Sjómann
Fyrirfram máttu búast við auðveldum sigri handboltans þegar Hjalti Pálmason mætti Magnúsi Bernhard í sjómannskeppninni. Hjalti vann Magnús með hægri hendi á 1,3 sek en með vinstri hendi hafði Magnús sigur eftir langa keppni. 1-1 jafntefli

Reipitog
Handboltinn vann reipitogið. Hugsanlega má skýra það af miklum þyngdarmismun. 2-0 fyrir handboltann

Fótboltaspil
Segja má að óvæntustu úrslit keppninna hafi verið í fótboltaspilinu. Fótboltamenn vilja helst gleyma þessari keppnisgrein en fyrirfram var búist við stórsigri fótboltans þar sem þeir iðka þetta spil daglega. En oft bregðast krosstré sem önnur tré og eftir að hafa verið nokkrum mörkum undir tókst handboltanum að vinna. Við það brutust út mikil fagnarðarlæti. 2-0 fyrir handboltann.

Boðhlaup
Fótboltinn rúllaði yfir boðhlaupið, 2-0.

Limbó
Fótboltinn vann limbóið mjög örugglega en Enric, Bragi og Pétur fóru lengra en nokkur handboltamaður. 2-0 fyrir fótboltann.

Klemmuleikur
Fyrir seinustu keppnisgrein var handboltinn með fjögurra stiga forystu, 12-8. Klemmuleikurinn var mjög "brútal". Eftir mikla baráttu hafði fótboltinn betur og jafnaði þar með metin, 12-12 í heildarstigakeppninni.

Í bráðabana var farið í boðhlaup. Eftir boðhlaupið var enn jafnt þar sem liðin komu nákvæmlega á sama tíma í mark. Þar sem seinkun var á dagskránni, þurfti að slíta keppninni en stíf dagskrá var hjá fótboltanum þennan daginn og þeir að vera of seinir í golf og keilu. Úrslitin munu því ráðast seinna.


__________________________________________

100_m_hlaup

Hérna má sjá Sigurð Eggertsson og Hilmar Kristinsson fyrir handboltann á undan Hrafni Jónssyni og Garðari Guðnasyni í 100 m hlaupinu

Fotboltaspil_kkk

Ægir Hrafn Jónsson og Óli Björn Vilhjálmsson vinna Bjarna Jakob Gunnarsson og Pétur Má.

Sjomann_kvenna

Hildur Marín frá handboltanum vann tvöfaldan sigur.

Reipitog_fimleikar

Fimleikastelpurnar á undanhaldi í reipitoginu

Limbo_kvenna

Hopmynd_mfl._kvenna

Handboltastelpurnar Gróttubikarsmeistarar 2010

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.