Nýjustu úrslit
ÍA - Grótta: 6 - 1
Knattspyrna - Mfl. karla
Skagamenn átt hreinan stórleik ţegar ţeir gjörsigruđu liđ Gróttu 6-1 og gera nú atlögu ađ efri hluta deildarinnar í fyrsta sinn í tvö ár. Á sama tíma er stađa Gróttumanna orđin mjög erfiđ í fallbaráttunni í dag og má ekkert útaf bregđa til ađ ţeir falli niđur í 2. deild ađeins einu stigi frá fallsćti.
Fátt virtist ţó benda til ţess í byrjun leiks ađ sjö mörk yrđu skoruđ í honum. Leikurinn var afar daufur og ekkert markvert gerđist fyrsta korteriđ í honum. Ţađ var ţó á 18. mínútu sem stíflan brast en ţá átti Ragnar Ţór Gunnarsson góđa stungusendingu innfyrir vörn Gróttu ţar sem Gary Martin var réttur mađur á réttum stađ og vippađi boltanum yfir Kristján Finnbogason í markinu.
Einungis ţremur mínútum síđar komust skagamenn í 2-0 ţegar Ólafur Valur Valdimarsson átti hornspyrnu og eftir klafs í teignum fékk Guđjón Heiđar Sveinsson boltann út viđ endamörk. Hann átti snilldarsendingu yfir á fjćrstöngina ţar sem Andri Júlíusson kom ađvífandi og hamrađi boltann upp í ţaknetiđ.
Gróttumenn virtust algjörlega vera slegnir útaf laginu eftir ţennan góđa kafla skagamanna og komust í raun aldrei í takt viđ leikinn eftir hann. Heimamenn gengu á lagiđ og héldu áfram ađ herja á laskađ liđ gestanna. Gary Martin átti góđa rispu og lék á tvo varnarmenn en gott skot hans fór rétt framhjá stönginni. Á 31. mínútu leit svo ţriđja markiđ dagsins ljós ţegar Ólafur Valur Valdimarsson átti góđa fyrirgjöf inn í vítateig ţar semAndri Júlíusson var einn og óvaldađur og skallađi boltann af öryggi í stöngina og inn.
Gestirnir gerđu hvađ ţeir gátu til ađ halda vörninni saman en ţeir máttu sín lítils gegn gegndarlausum sóknarlotum ÍA. Á 41. mínútu kom svo fjórđa markiđ ţegar Andri Júlíusson átti frábćran sprett upp hćgri kantinn, lék á einn varnarmann og komst inn í vítateig. Ţar gaf hann góđa sendingu á hinn háaldrađa Hjört Júlíus Hjartarson sem gat ekki annađ en skorađ međ hnitmiđuđu skoti í fjćrhorniđ. Sýndi Hjörtur ţar eina ferđina enn ađ öldruđum er margt til lista lagt.
Eftir ađ vera komnir í 4-0 fóru heimamenn ađ gefa eftir og Gróttumenn fóru ađ komast fram yfir miđju, sem hafđi veriđ sjaldséđ sjón í fyrri hálfleik. Á markamínútunni frćgu eđa ţeirri 43 fékk Daniel Howell boltann á vinstri kantinn. Hann lék á varnarmann og átti lúmkst skot í nćrhorniđ sem fór framhjá Páli Gísla Jónssyni og í netiđ. Klaufalega ađ verki stađiđ hjá vörninni ţar.
Leikurinn fjarađi út í framhaldinu og stađan 4-1 fyrir heimamenn í leik ţar sem munurinn hefđi getađ veriđ enn meiri ef ÍA hefđi nýtt betur sumar sóknir sínar og menn veriđ yfirvegađri í sínum sóknarađgerđum.
Gróttumenn komu mun frískari til leiks í síđari hálfleik og leikurinn var mun jafnari framan af. Strax á ţriđju mínútu hálfleiksins fékk Grótta aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Viggó Kristjánsson átti ţar hörkuskot sem Páll Gísli Jónsson varđi frábćrlega í horn. Misstu gestirnir ţar af kjörnu tćkifćri til ađ komast inn í leikinn.
Á nćstu mínútum áttu bćđi liđ álitlegar sóknir en ţeim tókst ekki ađ brjóta varnirnar á bak aftur. Besta fćriđ fékk Ragnar Leósson eftir góđa sendingu frá Ólafi Val Valdimarssyni en skot hans var meistaralega variđ af Kristjáni Finnbogasyni.
Á 64. mínútu leiksins kom svo hiđ endanlega rothögg fyrir Gróttumenn. Ţá átti Ólafur Valur Valdimarssonskot lengst utan af vinstri kanti sem fór í boga yfir Kristján í markinu og í fjćrhorniđ. Ákaflega vandrćđalegt mark fyrir Kristján sem var illa stađsettur í markinu og variđ vel fram ađ ţví.
Allur vindur var úr gestunum eftir fimmta markiđ og strax í nćstu sókn átti Gary Martin góđan sprett upp vinstri kantinn og náđi góđri sendingu á fjćrstöngina. Ţar var Aron Ýmir Pétursson vel stađsettur en fastur skalli hans fór rétt yfir ţverslánna.
Stuttu síđar eđa á 68. mínútu kom svo enn eitt markiđ ţegar Gary Martin átti annan frábćran sprett upp kantinn. Fyrirgjöf hans lenti beint á glókollinum Andra Júlíussyni sem skallađi framhjá Kristjáni í markiđ. Andri Júlíusson ţarna kominn međ ţrennu í leiknum.
Ţađ sem eftir lifđi leiks var fátt til frásagnar. Heimamenn virtust saddir eftir sex góđ mörk og Gróttumenn virtust vilja ađ leikurinn vćri flautađur af sem fyrst. Á lokamínútunni náđu skagamenn ţó ađ sundurspila vörnina enn einu sinni ţegar Eggert Kári Karlsson átti góđa sendingu inn á Ragnar Ţór Gunnarsson náđi skoti sem Bjarni Jakob Gunnarsson náđi ađ bjarga á línu. Ragnar Ţór náđi frákastinu og öđru skoti sem Bjarni Jakob náđi ađ bjarga aftur á undraverđan hátt og koma ţannig í veg fyrir sjöunda markiđ.
Skömmu síđar var leikurinn svo flautađur af af góđum dómara leiksins, hinum óviđjafnanlega og knáa Gunnari Jarli, betur ţekktur sem Jarlinn af Breiđholtinu. 6-1 fyrir ÍA í besta leik heimamanna í lengri tíma.
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=96941#ixzz0ykA5Xgmu

