Knattspyrnudeild

Fjör á þorrablót

3.2.2012 Knattspyrnudeild : Rífandi stemning á Þorrablóti Seltirninga

Um 200 manns komu saman í Félagsheimili Seltjarnarness á laugardaginn þegar Þorrablót Seltirninga var haldið hátíðlegt. Kári Húnfjörð stýrði gleðskapnum af mikilli snilld, leikkonan Björk Jakobs fór með gamanmál og þegar nálgaðist miðnætti keyrðu Nesvinir upp dúndrandi stemningu. Rúsínan í pylsuendanum var svo DJ Kiddi Bigfoot sem hélt uppi stuðinu fram eftir nóttu þegar þorrablótsgestir dönsuðu frá sér allt vit á dansgólfinu. Sannarlega vel heppnað blót sem verður vonandi endurtekið að ári.  Lesa meira
 
Fannar Freyr og Agnar á Norway Cup

1.2.2012 Knattspyrnudeild : Gróttustrákar á úrtaksæfingum U16 og U17

Um næstu helgi koma æfingahópar U16 og U17 ára landsliða Íslands í knattspyrnu saman og á Grótta nokkra fulltrúa á æfingunum. Þeir Agnar Guðjónsson, Dagur Guðjónsson og Fannar Freyr Ómarsson voru valdir í U16 ára hópinn en þetta er seinni hópurinn að tveimur sem æfir í vetur. Með U17 ára hópnum eru þeir Bessi Jóhannsson og Hjalti Már Hjaltason boðaðir til æfinga. Þeir hafa báðir æft með liðinu í vetur en 17 ára landsliðið æfir reglulega fram að Norðurlandamóti og forkeppni EM í sumar. Lesa meira
 
Hilmar Sigurðsson formaður

22.1.2012 Knattspyrnudeild : Hilmar Sigurðsson: "Fótboltinn skapar skemmtilega stemningu hér í bænum"

Hilmar Sigurðsson er formaður knattspyrnudeildar Gróttu og hefur gegnt því embætti í heil 10 ár. Í formannstíð Hilmars hafa ýmsir áfangar í starfi knattspyrnudeildarinnar unnist, bæði hjá meistaraflokki og yngri iðkendum, og er Hilmar bjartsýnn á framtíð félagsins. Fréttamaður Gróttusport settist niður með formanninum fyrir stuttu og spurði margs um starfið, uppgangiinn, fallið og framtíðina hjá knattspyrnudeild Gróttu. Lesa meira
 
goalkeeper

21.1.2012 Knattspyrnudeild : Markmannsæfingar að hefjast

Núna á morgun eru markmannsæfingar hjá Gróttu hefjast fyrir yngri hópinn og svo á miðvikudag fyrir þá eldri. Magnús Örn Helgason markmaður meistaraflokks karla mun sjá um æfingarnar. Æfingarnar eru sem hér segir; 5. og 6.fl. karla og 4.flokkur kvenna á þriðjudögum kl. 15:45-16:25. 4. og 3.flokkur karla er síðan á miðvikudögum kl. 16:40-17:30. Æfingarnar fara fram á knattspyrnuvellinum.

Lesa meira
 
Þorrablót 2012

20.1.2012 Knattspyrnudeild : Styttist í Þorrablót

Gleðilegan bóndadag, bændur og húsbændur um land allt! Nú fer að styttast í Þorrablót Seltirninga en herlegheitin fara fram laugardaginn 28. janúar í félagsheimilinu. Miðasala hefur gengið vel og stefnir í fullt hús og rífandi stemningu. Það fer því hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þennan stórviðburð. Eins er mikilvægt að gengið verði frá greiðslu fyrir pantaða miða eigi síðar en mánudaginn 23. janúar. Sjá nánar. Lesa meira
 
Ali og Birgir Hákonarson, gjaldkeri, við undirritun samningsins

17.1.2012 Knattspyrnudeild : Ali skrifar undir nýjan samning

Knattspyrnukappinn fótafimi, Grétar Ali Khan, hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Gróttu. Samningurinn var undirritaður við hátíðlega athöfn í vallarhúsinu á föstudag en eins og kunnugt er skrifaði Bjarni Jakob Gunnarsson undir fyrir stuttu. Ali, sem leikur sem vinstri bakvörður eða kantmaður, hefur leikið 113 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu og er því næst leikjahæsi leikmaður liðsins á eftir Garðari Guðnasyni. Í sumar lék Ali 13 leiki í 1. deildinni og er nú klár fyrir átök og baráttu 2. deildarinnar næsta sumar. Lesa meira
 
JohannesH

15.1.2012 Knattspyrnudeild : Grótta gerði jafntefli við ÍBV

Meistaraflokkur hefur hafið æfingar á ný eftir gott jólafrí og var fyrsti leikur ársins leikinn á Gróttuvelli síðasta fimmtudag. ÍBV kom þá í heimsókn, eða réttara sagt blandað lið ÍBV og KA en stór hluti þessara liða æfir í Reykjavík. Leikurinn var hin besta skemmtun og voru Gróttumenn hársbreitt frá því að leggja Pepsi-deildarliðið að velli. Leikar enduðu 3-3 en mörk okkar manna skoruðu þeir Kristófer Þór Magnússon, Jóhannes Hilmarsson og Garðar Guðnason. Lesa meira
 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Á döfinni


Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.